Sjálfstæðisflokkurinn
Um Sjálfstæðisflokkinn

Í framboði til málefnanefnda


Efnahags- og viðskiptanefnd
  • Thorlindur-Kjartansson

Þórlindur Kjartansson

Reykjavík

Ég óska eftir að sitja í efnahags- og viðskiptanefnd því ég vil taka þátt í að móta trúverðuga stefnu til þess að leysa Ísland úr viðjum hafta og stöðnunar. Það er mikilvægasta verkefni okkar og um leið forsenda fyrir því að snúa Íslandi af braut afturhalds, stöðnunar og pólitískrar hefnigirni.

Sjálfstæðisflokkurinn þarf að móta og kynna stefnu sem tryggir  að frjálst, haftalaust og alþjóðlegt athafnalíf geti staðið undir framúrskarandi lífskjörum og blómstrandi mannlífi á Íslandi. Lykilatriði í þeim efnum er að bjóða upp á trúverðuga lausn í gjaldeyrismálum og standa vörð um skynsamlega nýtingu auðlindanna, eignarréttin og athafnafrelsið. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki forystu í þessum málaflokkum mun þjóðarskútan áfram sigla stefnulaus eða í ranga átt.

 

Menntun: BA í hagfræði frá HÍ. M.L í lögfræði frá HR.

Helstu störf fyrir Sjálfstæðisflokkinn: Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 2007 - 2009 og sat í framkvæmdastjórn flokksins á sama tíma.

Önnur félagsstörf: Gegndi embættum varaformanns, formanns og oddvita Vöku í HÍ. Var Inspector Scholae í MR.

Ritstörf: Hef skrifað hundruð greina á Deiglan.com og í dagblöð, m.a. mikið um efnahagsmál.

Starfsferill: Starfaði sem ráðgjafi Geirs H. Haarde 2001 - 2003. Blaðamaður 2003 - 2005. Í Landsbanka Íslands 2005 - 2008. Hef síðan starfað sjálfstætt.


 

Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica