Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ég er 51 árs og bý í Norðlingaholti í Reykjavík. Ég er menntaður tæknifræðingur og lauk námi í MBA viðskiptafræði 2010. Einnig með próf í verðbréfaviðskiptum og rekstrarfræði. Nú bý ég í Norðlingaholti í Reykjavík og hef starfað síðustu árin við verkefnastjórnun, innkaupastjórnun og við ýmis hagræðingarverkefni. Hef m.a. verið verkefnahóp sem kannað hefur möguleika á innleiðingu á umhverfisvænni orkugjöfum ásamt því að finna leiðir til að hagræða í samgöngum með þjóðarsparnað í huga.
Alla tíð hef ég stutt Sjálfstæðisflokkinn og var í stjórn Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi í 12 ár. Þar af formaður í fjögur og varaformaður í önnur fjögur. Einnig sat ég í stjórn Varðar ásamt því að vera fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hverfisráði Grafarvogs 2007 til 2010. Ég hef verið virkur í ýmsum verkefnum innan flokksins s.s. prófkjörs og kosningavinnu og tók þátt í störfum Efnahags- og skattanefndar Varðar á síðasta ári.
Efnahagsmál þjóðarinnar hafa lengi verið mér hugleikin. Nýta þarf betur sköpunarkraft einstaklinga í stað þess að beita skattaálögum á landsmenn. Það er sannfæring mín að það er ýmislegt hægt að gera til að gera lífsgæði þjóðarinnar mun betri en nú er með góðri efnahagsstjórn.