Beint í leiðarkerfi vefsins.
Vegna þess að ég hef boðið mig fram til starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn í nefndarstörf vil ég taka fram nokkur atriði sem ég legg til grundvallar framboðinu. Það er ekki seinn a vænna að málefnastarf hefjist innan flokksins vegna komandi kosninga til alþingis.
Mörg mál mun halda áfram að hrekja núverandi ríkisstjórn lengra útí horn. Okkar fólk þarf að vera samstillt og undirbuið til þess að leiða þjóðina frá slæmum afleiðingum kreppu. Stefnumarkandi landsfundir hafa skilað verkefnum sem þarf að útfæra og koma á framfæri við þjóðina Ég tel það hlutverk nefndanna að koma markmiðssetningu landsfunda til skila við fólkið í landinu og Frekari umræðu um Velferðarstefnu ,verkefni ,blómlegt atvinnulíf og öryggismál lítillar þjóðar í stóru landi. Móta nýja efnahagsstefnu frjáls og fullvalda ríkis hvers sjálfstæði er tryggt með virðingu og vináttu borgaranna og nágrannaþjóða í ,traustu samstarfi og viðskiptalíf sem ber hagsmuni allrar þjóðarinnar ´´Stétt með stétt´´ , fyrir brjósti .
Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem leitt getur slíka stefnu,vel ígrundaða sem byggi á lögum og stjórnarskrá fullveldis þjóðarinnar. Stjórnarsamstarf um annað en frjálst og fullvalda ríki á Íslandi verður aldrei samkomulagsatriði samanber ákveðnar samþykktir undanfarinna landsfunda.
Fram til sigurs sjálfstæðismenn!
Kveðja, Haukur Hjaltason .