Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þegar ferli fyrstu vinstri stjórnarinnar lýkur, tekur við tími endurreisnar og endursköpunar. Þar ber nokkur megin viðfangsefni yfir annað í umhvefinu. Endurreisnin og tiltektin eiga að byggja á eftirtöldum grunnstefnumálum frjáls framtaks og hvata til verðmætasköpunar. • Atvinnufrelsi til lands og sjávar • Frelsi til framtaks og víðtæk vernd einstaklingsbundinna réttinda – lagaumbætur • Sanngjarnt skattaumhverfi • Eignarréttur virtur • Hvati til nýsköpunar, frumkvöðlastarfsemi, frumrannsókna • Umbætur í viðskiptaumhverfi • Frelsi í fjárhagsmálum einstaklinga og fyrirtækja Fyrsta verkefni nýrrar ríkisstjórnar og þeirra sem fara með atvinnumál verður að fínkemba allt sem núverandi stjórn hefur gert, m.a. í lagaumhverfi sem varðar aðstöðu nýs atvinnurekstrar til uppgangs eftir viðamiklar breytingar á því umhverfi; breytingar sem hafa miðað að því að innleiða á Íslandi kerfi ríkisafskipta, eftirlitsáráttu, skattagleði, öfundar og ráðstjórnarhyggju: Samantekið: Afnemum ríkisánauðina sem kommúnistar á Íslandi eru reyna að innleiða. Færum almenningi sanngjarnari tíma og von um réttlæti og frelsi á öllum sviðum. Guðmundur Kjartansson, s. 694-9741; gummik55@gmail.com