Reykjavík
Frambjóðendur

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Borgarfulltrúi

4. sæti

 
_MG_0373

Þorbjörg Helga

Hver eru helstu málefni þín innan borgarinnar?

Vegna menntunar minnar er ég eðli málsins samkvæmt áhugasöm um skólamál. Þar hef ég verið að leiða leikskólamálin og hef haft þau markmið að auka val og fjölbreytni og tryggja jafnræði á milli barna. Við höfum fjölgað um þrjá leikskóla á þessu kjörtímabili og búið til ungbarnaleikskóla. Við höfum aukið niðurgreiðslur með dagforeldrabörnum, innleitt þjónustutryggingu og samþætt hvaða peningar fylgja barninu í leikskólanum óháð því hvaða rekstrarform foreldrar velja. Ég hef verið einbeitt í að tryggja að sérkennslan sé líka gegnsæ. Búið er að gera sérkennslustefnu sem er opin fyrir alla og við höfum aukið mjög fjármagn til þeirra barna sem þurfa á aðstoð að halda.

 

Fylgdu okkur á Facebook

Myndirnar á Flickr

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica