Reykjavík
Frambjóðendur

Marta Guðjónsdóttir

Marta Guðjónsdóttir

Marta Guðjónsdóttir

Kennari

10. sæti

 

Marta Guðjónsdóttir

Hver eru helstu málefni þín innan borgarinnar?

Menntamálin og mannréttindamálin en ég er formaður Mannréttindaráðs borgarinnar. Við höfum verið að vinna að viðamiklum verkefnum á þessu kjörtímabili og má þar einkum nefna jafnréttismálin, málefni innflytjenda, málefni barna og annarra hópa sem heyra undir mannréttindastefnuna. Stigið var stórt skref þegar verkefnaáætlun í málefnum Innflytjenda var samþykkt í fyrra.

Hvaða ávinningum hefur verkefnaáætlunin nú þegar skilað?

Ýmis verkefni okkar sem lúta að aðlögun innflytjenda hafa skilað umtalsverðum árangri. Má þar nefna foreldranámskeið í grunnskólum þar sem fjallað er um gangverk skólakerfisins og ábyrgð og skyldur kerfisins, nemenda og foreldra. Við höfum einnig boðið aðstoð við heimanám og Frístundakortið hefur aukið þátttöku þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi. Við höfum líka verið að þróa nýjar leiðir varðandi móttöku nýrra íbúa í Reykjavík en hugsunin er sú að það er sama hvort þú komir frá Raufarhöfn eða Asíu, áttu að geta gengið að ákveðnum upplýsingum um réttindi þin og skyldur.

 

Fylgdu okkur á Facebook

Myndirnar á Flickr

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica