Reykjavík
Málefnin
Skapandi Reykjavík
  • Menningarmál

Skapandi Reykjavík

Menning

Með markvissum stuðningi við menningarstarfsemi hefur Reykjavíkurborg stutt listalífið og stuðlað að því að gera borgina líflegri og skemmtilegri fyrir borgarbúa og þá sem sækja okkur heim.  Skýr stefna hefur gert kleift að útfæra mælanleg markmið, aðgerðaáætlun, ná betri yfirsýn þar sem menning er lykilþáttur í ferðaþjónustu. Mikil sóknarfæri eru á sviði menningar og samþættingu hennar við ferðaþjónustu. Menningarsöguleg arfleifð Reykjavíkur er mikil og metnaðarfullt listalíf með mikið aðdráttarafl er til staðar. Listir og menning eru þannig hluti af atvinnustefnu borgarinnar. Með því að setja ferðamál í brennidepil og mynda fjölbreytt litróf menningarviðburða allt árið um kring getur Reykjavíkurborg laðað að sér fólk og tækifæri. Ferðaþjónusta er stóriðja okkar Reykvíkinga.  

Atvinna
Reykjavíkurborg er virkur þátttakandi í atvinnulífi borgarinnar sem einn stærsti vinnuveitandi landsins. Verkefni borgarinnar snúa m.a. að því að bæta nærumhverfi borgaranna. Slík verkefni eru jafnan mannaflsfrek og hyggst borgin halda áfram slíkum verkefnum. Eitt mikilvægasta verkefni Reykjavíkurborgar er að veita fyrirtækjum þjónustu og tryggja að í borginni sé frjósamt og hagstætt umhverfi fyrir fyrirtæki og frumkvöðla. Lágir skattar og gjöld gegna þar lykihlutverki. Á komandi kjörtímabili verða skattar og gjöld á fyrirtæki ekki hækkuð. Þannig verður Reykvískum fyrirtækjum sköpuð góð rekstarskilyrði svo vinna megi bug á atvinnuleysi.

Við höfum:

  • Stutt af krafti grasrótarverkefni, verkefni einstaklinga og sjálfstæðra hópa í alls kyns menningarstarfsemi enda mikilvægur farvegur nýsköpunar og fjölbreytni.
  • Stuðlað að fjölbreyttri aðstöðu fyrir listir og menningu. Tjarnarbíó var endurgert með tilliti til sjálfstæðra leikhópa og kvikmyndasýninga.
  • Byggt upp hátíðir í Reykjavík, Barnamenningarhátíð haldin í fyrsta sinn vorið 2010, aðrar hátíðir studdar enda mikilvægt innlegg í borgarlífið.
  • Bætt uppbygging menningarminja, Landnámssýningin var opnuð, Austurstræti 10 elsta hús borgarinnar gert upp og kraftur settur í endurgerð gamalla húsa með átaksverkefninu Völundarverki.
  • Felltt niður aðgangeyrir að Listasafni Reykjavíkur og fjölgað þar með gestum um 40%.
  • Aukið markaðssetningu á Reykjavík sem ráðstefnuborg. Iceland Naturally kynningar- samstarfið hófst 2008 og Höfuðborgarstofa fékk alþjóðlega viðurkenningu vegna markaðssetningar 2007.
  • Tryggt byggingu og frágang Hörpu tónlistarhúss.
  • Haldið uppi framkvæmdum en til samanburðar má nefna að Reykjavíkurborg og dótturfélög framkvæma fyrir um 26 milljarða á meðan ríkið framkvæmir fyrir aðeins 18 milljarða.
  • Fjölgað sumarstöfum námsmanna með auknu framlagi til Nýsköpunarsjóðs námsmanna í samstarfi við menntamálaráðuneytið.
  • Samþykkt námskeiðahald fyrir atvinnulaus ungmenni. Íþrótta- og tómstundasvið, Vinnumálastofnun og þjónustumiðstöðvar skipuleggja námskeiðin í samráði við Rauða kross Íslands og aðra samstarfsaðila í einstökum hverfum.
  • Varið 150 milljónum til sérstakra atvinnuátaksverkefna í sumar.
  • Hvatt til nýsköpunar m.a. með því að veita ungu fólki tækifæri til að senda inn hugmyndir að nýstárlegum verkefnum til Reykjavíkurborgar
Við munum:

  • Setja ferðamál í brennidepil og nýta tækifæri í ferðaþjónustunni.
  • Vinna að uppbyggingu menningarviðburða.
  • Stuðla að nýsköpun og metnaðarfullu lista og menningarlífi enda í því falinn fjársjóður.
  • Auka mannlíf og efla verslun og þjónustu.
  • Auka samvinnu og tengslamyndun milli stofnana, grasrótarverkefna og einkaaðila, erlendra sem innlendra.
  • Halda áfram stöðugri uppbyggingu og varðveislu menningarminja.
  • Halda áfram stuðningi við ungmenni í borginni til að tryggja flestum sumarstörf.
  • Framkvæma eins og staða borgarsjóðs leyfir.
  • Auka þjónustu við fyrirtæki og frumkvöðla í borginni.
  • Halda áfram stuðningi við nýsköpunarverkefni námsmanna.
  • Hvetja til atvinnusköpunar og standa þannig vörð um tekjugrundvöll fjölskyldna og fyrirtækja.

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica