Hagkvæma Reykjavík
Fjármál og reksturÁrsreikningur Reykjavíkurborgar staðfestir að árangur undanfarinna ára er einstakur. Borgarsjóður var rekinn hallalaus á árinu og veruleg umskipti urðu til hins betra í rekstri borgarsamstæðunnar í heild. Rekstrarniðurstaða borgarsamstæðunnar fyrir fjármagnsliði var jákvæð um rúmlega 9,7 milljarða. Þannig hafa hagræðingaraðgerðir borgarinnar skilað raunverulegum árangri. Mikið samráð borgarfulltrúa meiri- og minnihluta og við starfsmenn borgarinnar á öllum sviðum og stigum er lykilillinn að þessu. Þannig njóta borgarbúar þess í eigin fjárhag á hverjum degi að í rekstri Reykjavíkurborgar hefur verið tekið á málum af framsýni og festu.
Við höfum:
- Hagrætt í samstarfi við borgarstarfsmenn og um leið varið grunnþjónustu Reykjavíkur til að vernda þá sem minnst mega sín.
- Gjörbreytt rekstrarumhverfi Reykjavíkurborgar.
- Haldið gjaldskrám vegna leikskólagjalda, matargjalda í grunnskólum og frístundaheimilisgjalda með þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu.
- Haldið sköttum óbreyttum allt kjörtímabilið.
- Breytt vinnubrögðum við fjármálastjórn Reykajvíkur.
- Rekið borgarsjóð hallalaust frá árinu 2007 þrátt fyrir efnahagsáföll.
- Lækkað fasteignaskatta.
- Halda áfram vinnubrögðum samráðs og samstarfs á öllum sviðum borgarinnar.
- Stunda áfram ábyrga fjármálastjórn.
- Halda álögum á almenning í lágmarki.
- Auka rafræna þjónustu við borgarbúa.
- Halda áfram að vinna á grundvelli aðgerðaráætlunar borgarstjórnar vegna aðstæðna í efnahags- og atvinnumálum.
- Auka upplýsingamiðlun um rekstur borgarinnar með opna stjórnsýslu og gegnsæi að leiðarljósi.


Reykjavik