Reykjavík
Málefnin
Áherslur
  • Mannréttindamál

Vinnum saman í Reykjavík

Forgangsröðum í þágu fjölskyldna og stöndum áfram vörð um góða grunnþjónustu, menntun, um börnin okkar og eldri borgara.
 
Hækkum ekki skatta og höldum gjaldskrám fyrir grunnþjónustu með þeim lægstu á landinu.

Sköpum aukin tækifæri til atvinnusóknar með framkvæmdum, átaksverkefnum og aðgengilegri þjónustu við fyrirtæki og frumkvöðla.

Leggjum aukna áherslu á nærumhverfi okkar, borgarhverfin sjálf og umhverfi þeirra, á lífsgæði og skilyrði til útivistar, afþreyingar og skemmtunar.

Aukum áhrif íbúa með kosningu þeirra í hverfisráð, atkvæðagreiðslu um forgangsröðun í fjárhagsáætlun og með beinni aðkomu að ákvarðanatöku.

Höldum áfram að breyta stjórnmálunum með aukinni samvinnu og sátt um það sem mestu skiptir.


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica