Reykjavík
Málefnin
Málefnin
  • Hanna Birna Kristjánsdóttir

Bréf frá Hönnu Birnu

Kæri Reykvíkingur.

Í Reykjavík eru ótal tækifæri og spennandi viðfangsefni. Sem borgarstjóri lít ég á það sem áskorun að stýra Reykjavíkurborg af festu og ábyrgð í þágu allra borgarbúa. Samvinna og sátt, styrk fjármálastjórn, öflug atvinnuuppbygging og festa í stjórnarháttum er forsenda þess að árangur náist og tækifærin nýtist sem best.

„Vinnum saman í Reykjavík“ eru einkunnarorðin sem við, frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins, höfum valið okkur fyrir komandi kosningar. Þau vísa til þeirra nýju vinnubragða sem við höfum innleitt í borgarstjórn Reykjavíkur. Með samstilltu átaki allra, íbúa, starfsfólks og borgarfulltrúa, hefur tekist að ná fram hagræðingu um leið og haldið er uppi öflugri þjónustu fyrir borgarbúa með skynsamlegri forgangsröðun í þágu barna og velferðar.

Þetta hefur okkur tekist án þess að auka álögur á almenning. Skattar hafa ekki verið hækkaðir hjá Reykjavíkurborg allt kjörtímabilið og fasteignagjöld hafa verið lækkuð. Leikskólagjöld, matargjöld í grunnskólum og frístundaheimilisgjöld eru nú með þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Borgarsjóður er rekinn án halla og fjárhagsstaðan er sterk. Á hverjum einasta degi njóta borgarbúar þess í eigin fjárhag að í rekstri Reykjavíkurborgar hefur verið tekið á málum af framsýni og festu.  

Þessi árangur kom ekki af sjálfu sér. Við brugðumst hratt og skipulega við kreppunni með aðgerðaáætlun þar sem borgarfulltrúar allra flokka komu að málum. Við leituðum samráðs við íbúa og starfsfólk borgarinnar um hagræðingu og sparnað á öllum sviðum. Í fyrsta skipti var borgarbúum gefinn kostur á því að hafa með beinum hætti áhrif á ákvarðanir við gerð fjárhagsáætlunar vegna hverfaverkefna.

Næstu fjögur ár skipta miklu máli. Borgarbúar eiga að geta treyst á öryggi grunnskólanna og leikskólanna fyrir börnin okkar og borgin á að hlúa að þeim sem eru hjálpar þurfi. Við verðum áfram að fylgja metnaðarfullri fjölskyldustefnu með áherslu á menntun, öryggi fyrir yngstu börnin, frístundir, menningu, íþróttir og blómlegt atvinnulíf. Við þurfum að halda áfram öflugri uppbyggingu fyrir eldri borgara og standa vörð um þjónustu við fatlaða. Við eigum að stíga enn fleiri græn skref með áherslu á umhverfisvænar lausnir og atvinnuskapandi framkvæmdir.

Saman getum við hafið nýja sókn og gert borgina okkar enn fegurri og betri. Samtaka sækjum við fram með því að auka íbúalýðræði, nýta krafta okkar allra og vinna saman að spennandi verkefnum í Reykjavík. Þannig getum við á komandi kjörtímabili búið í haginn fyrir framtíðina með ráðdeild og skynsemi og í góðu samráði við alla borgarbúa. Við eigum öll að geta sameinast um að segja með stolti: Reykjavík er borgin okkar.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica