Ég er formaður menntaráðs og Íþrótta- og tómstundaráðs og eru þessir málaflokkar því skiljanlega efst á baugi hjá mér en orkumál og umferðarmál eru mér einnig ofarlega í huga. Á kjörtímabilinu hef ég lagt mikla áherslu á samþættingu skóla- og frístundastarfs og koma þannig á samfelldum skóladegi barna í Reykjavík. Þetta höfum við gert með frekari samvinnu margra aðila þar sem nám og kennsla, hvíld og tómstundir, íþróttaiðkun, frístundaheimili, tónlistarnám og fleira vinnur saman. Ég er mjög ánægður með að tekist hefur að eyða biðliðstum fyrir frístundaheimili sem 6-9 ára börn sækja að loknum skóladegi og er það í fyrsta sinn sem það hefur tekist frá opnun þeirra árið 2002. Í menntamálum hefur megináhersla verið lögð á að láta gæði kennslunnar haldast þrátt fyrir fjármálakreppu og mikla hagræðingu. Ég tel að það hafi tekist vel sem sést m.a. á því að ánægja foreldra með skólastarf í Reykjavík hefur aukist. Þá hefur þátttaka í starfi íþróttafélaga og í almenningsíþróttum aukist verulega á síðastliðnum misserum sem er auðvitað einnig ánægjulegt.