Hver eru helstu málefni þín innan borgarinnar?
Fyrri hluta kjörtímabilsins var ég formaður menntaráðs og nú er það formennska í skipulagsráði sem á hug minn.
Hvernig á Reykjavíkurborg að bregðast við atvinnuleysinu?Við munum ekki hækka skatta. Það er mikilvægt framlag borgarinnará þessum erfiðu tímum fyrir marga borgarbúa. Ég hef heyrt að sumir telji þessa fullyrðingu ekki trúverðuga í aðdraganda kosninga. Ég skil vel að sú umræða fari af stað, enda hræða sporin í þeim efnum og þarf ekki að leita langt til að sjá það. Þriggja ára fjárhagsáætlun borgarinnar sýnir þó einmitt að skattar verða ekki hækkaðir og störf okkar á þessu kjörtímabili ættu að staðfesta það einnig. Á vettvangi skipulagsmála erum við að undirbúa endurreisnina með því að vera tilbúin með skipulagsáætlanir íbúða- og atvinnusvæða, þannig að ekki þurfi að bíða eftir þeirri vinnu þegar áhugi á uppbyggingu fer að glæðast. Við höfum skipulagt stórt atvinnusvæði sem bíður og verður fullgert þegar atvinnulífið fer að taka við sér. Á sama tíma verðum við að vera skjót til og aðstoða þá sem til okkar leita. Við verðum að vera minnug þess að fjármagns- og rekstrarkostnaður er það hár að mörg fyrirtæki þola ekki bið. Hjá Faxaflóahöfnum höfum við opnað fyrir að smærri fyrirtæki geti komið með starfsemi sína niður að höfn í gömlu verbúðirnar til þess að efla nýsköpun og auðga mannlíf við gömlu höfnina. Við lánuðum ungu fólki sem stendur að Hugmyndahúsinu 2.500 fermetra skemmu sem stóð auð og nýtist nú með nýjum hætti. Sprotafyrirtæki þurfa vettvang til að þróa áfram áhugaverðar hugmyndir sem geta orðið arðbærar og verið drifkraftur uppbyggingar í framtíðinni.