Ég er mjög áhugasöm um velferðarmál. Ég sóttist eftir því að verða formaður Velferðarráðs og hef stýrt þeim málaflokki allt þetta kjörtímabil. Mikilvæg mál hafa gengið eftir, eins og að sameina heimahjúkrun og heimaþjónustu, sem var stærsta sameining á sviði ríkis og sveitarfélags sem um getur, enda mjög stór málaflokkur. Nú er verið að undirbúa að málefni fatlaðra flytjist yfir til sveitafélagsins og auk þess höfum við gert breytingar á félagslega leiguíbúðakerfinu og gert stuðninginn einstaklingsbundnari en áður var. Einnig höfum við gert breytingar varðandi utangarðsfólkið. Við fórum í að meta þörfina, styðja við þau úrræði sem fyrir voru og setja ný af stað eins og koma á nýju dagvistarúrræði. Við höfum farið í algjöra stefnumótun í málaflokknum.