Reykjavík
Í brennidepli
Fréttir

Nýsköpun gæti tryggt 1100 ný störf í Reykjavík

6.10.2010

Í tillögunni er gert ráð fyrir að hafinn verði undirbúningur sérstakts átaks til að efla nýsköpun á sem flestum sviðum í Reykjavíkurborg.  Það verði forgangsverkefni að tryggja umhverfi og tækifæri sem hvetji til nýsköpunar og nýrra starfa.  Litið verði til reynslu annarra borga af slíkum átaksverkefnum og einnig stuðst við þá vinnu sem unnin var á vettvangi borgarstjórnar á síðasta kjörtímabili undir merkjum sóknaráætlunar.

Í greinargerð sem fylgir tillögunni eru lagðar til aðgerðir sem hafa það að markmiði að efla Reykjavík sem nýsköpunarborg á alþjóðlegan mælikvarða.   Það er ljóst að betur má ef duga skal en samkvæmt Norrænu nýsköpunarvoginni sem kynnt var nú á dögunum kom í ljós að Ísland er eftirbátur annarra þjóða þegar litið er til þess að stofna ný fyrirtæki og koma því í góðan rekstur. Norræna nýsköpunarvogin byggir niðurstöður sínar á fjölmörgum hlutlægum þáttum s.s. fjölda nýrra fyrirtækja og hvernig þau standa sig í samkeppni.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn telur mikilvægt að litið sé á nýsköpun sem langtímaverkefni.  ,,Það er almennt talin mjög farsæl laus til þess að skapa langvarandi störf.  Samkvæmt nýlegri rannsókn í Bandaríkjunum skapa sprotafyrirtæki yfir 3 milljónir nýrra starfa á ári.  Séu þessar tölur yfirfærðar á íbúafjölda Reykjavíkurborgar má gera ráð fyrir að ný fyrirtæki geti skapað um 1140 ný störf ári.  Að standa vel að þessu skiptir miklu fyrir borgin og því er það ánægjuefni að borgarstjórn hafi samþykkt tillöguna og þær áherslur sem í henni felast"  


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica