Fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi í könnun MMR
70,5% aðspurðra telja Hönnu Birnu hafi staðið sig vel í starfi borgarstjóra
Stöð 2 birti í fréttatíma sínum í kvöld frétt um skoðanakönnun sem Sjálfstæðisflokkurinn lét MMR gera fyrir sig í síðustu viku.
Besti flokkurinn er samkvæmt könnuninni með mest fylgi í borginni eða 35,7%, Sjálfstæðisflokkur er næst stærstur með 30,9%, Samfylking með 17,9%, Vinstri grænir með 10,3% og Framsóknarflokkurinn með 3%.
Fylgisaukning Besta flokksins er nánast öll á kostnað Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Besti flokkurinn bætir við sig miklu fylgi í könnuninni miðað við síðustu könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins eða rúmum 12%, Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig 1% Samfylkingin tapar 5% og Vinstri græn 6,7%,
Verði þetta niðustöður kosninganna myndi Besti flokkurinn fá 6 borgarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn 5, Samfylkingin 3 og Vinstri græn 1.
70,5% aðspurðra telja Hönnu Birnu hafi staðið sig vel í starfi borgarstjóra
Einnig var könnuð afstaða kjósenda til þess hversu vel eða illa það teldi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur hafa staðið sig í starfi borgarstjóra. Þar kom í ljós að 70,5% aðspurðra telja Hönnu Birnu hafi staðið sig frekar vel eða mjög vel.
MMR gerði könnunina dagana 4. til 10. maí. Úrtakið var 816 einstaklingar valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
