Reykjavík
Í brennidepli
Fréttir
  • Ráðhús Reykjavíkur

Áherslur sjálfstæðismanna í Reykjavík á komandi kjörtímabili

10.5.2010

Eftirfarandi eru þau atriði sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins mun leggja megin áherslu á á næsta kjörtímabili:
 
Forgangsröðum í þágu fjölskyldna og stöndum áfram vörð um góða grunnþjónustu, menntun, um börnin okkar og eldri borgara.

Hækkum ekki skatta og höldum gjaldskrám fyrir grunnþjónustu með þeim lægstu á landinu. 
 
Sköpum aukin tækifæri til atvinnusóknar með framkvæmdum, átaksverkefnum og aðgengilegri þjónustu við fyrirtæki og frumkvöðla.
 
Leggjum aukna áherslu á nærumhverfi okkar, borgarhverfin sjálf og umhverfi þeirra, á lífsgæði og skilyrði til útivistar, afþreyingar og skemmtunar. 
 
Aukum áhrif íbúa með kosningu þeirra í hverfisráð, atkvæðagreiðslu um forgangsröðun í fjárhagsáætlun og með beinni aðkomu að ákvarðanatöku.
 
Höldum áfram að breyta stjórnmálunum með aukinni samvinnu og sátt um það sem mestu skiptir.


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica