Reykjavík
Í brennidepli
Fréttir

Meirihlutinn hefur kostað meðalfjölskyldu 300 þúsund krónur

6.12.2011

Önnur umræða um fjárhagsáætlun 2012 fór fram í borgarstjórn í dag.  Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins lagði fram tillögu um að lækka álagningarhlutfall útsvars úr 14.48% í 14.23%, þannig að ítrekaðar skattahækkanir meirihlutans yrðu teknar til baka og álagningarhlutfallið það sama og það var árið 2010.  Skatta- og gjaldskrárhækkanir meirihlutans eru komnar langt út fyrir þolmörk og greiðslugetu borgarbúa en skatttekjur borgarinnar hafa aukist um 15% frá 2010 og tekjur vegna gjaldskrár hafa hækkað um 42%.  Meirihlutinn hefur tekið allt of mikið fé frá borgarbúum, aukið kostnað um of í kerfinu og á sama tíma lítið sem ekkert skorið niður í stjórnsýslunni.

Þegar hækkanir meirihluta Besta flokks og Samfylkingar á fjölskyldur í borginni eru teknar saman eins og sjá má mun meirihlutinn mun kosta meðalfjölskyldu um 300 þúsund krónur frá 2010 til og með árinu 2012.  Á sama tíma hafa rekstrarútgjöld hækkað og kerfið blæs út á kostnað borgarbúa.  Á síðastliðnu ári nam hækkun á fjölskyldu um 150 þúsund og annað árið í röð leggur meirihlutinn aðra eins byrði á fólkið í borginni.  Það er ótækt að meirihlutinn innheimti látlaust fé frá borgarbúum til þess að komast hjá því að fara í hagræðingu í stjórnsýslunni.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins hvatti meirihlutann á fundinum í dag til þess að endurskoða þessa skatta- og gjaldskrárstefnu: ,,Þessi leið endalausra hækkana skatta og gjalda hefur bitnað mjög harkalega á borgarbúum og ég hvet meirihlutann til þess að kynna sér aðrar lausnir.  Að taka rúmlega mánaðarlaun af almenningi í borginni með stöðugum hækkunum sem bitna hvað verst á barnafjölskyldum í borginni er bæði óafsakanlegt og óskiljanlegt.  Það er skylda kjörinna fulltrúa að tryggja borgarbúum bestu lífsgæði sem kostur er á hverju sinni en til þess þarf hugrekki, þor og pólitískan kjark - með það að leiðarljósi að hlífa fjölskyldunum í borginni og standa með þeim á erfiðum tímum."

Sjá dæmi um hækkanir í pdf skjali


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica