Reykjavík
Vesturbær

Vesturbær

Nokkur góð verkefni í Vesturbæ 2006–2010.

  • Viðbygging var hönnuð við Vesturbæjarskóla.
  • Hluti skólalóðar Vesturbæjarskóla var endurnýjaður.
  • Endurbætur og endurskipulagning á húsnæði Melaskóla; mötuneyti og heimilisfræðistofu auk þess sem hljóðvist var lagfærð.
  • Byggt var við Grandaborg og eldri byggingin lagfærð.
  • Leiksvæði við Grandaborg stækkað og endurgert.
  • Glæsilegur körfuboltavöllur (körfuboltagerði) sett upp við Hagaskóla.
  • Gervigrasvöllur settur upp við Öldugötu.
  • Æfingasvæðið við Starhaga endurnýjað og stækkað.
  • Hjólreiðastígur lagður eftir Ægisíðunni, sem eykur öryggi og styttir vegalengdir fyrir hjólreiðafólk.
  • Ný umferðarljós sett upp á gatnamótum Kaplaskjólsvegar, Nesvegar og Ægisíðu.
  • Gönguleiðir skólabarna kortlagðar og gerðar öruggari.
  • Tillaga hefur verið samþykkt um að draga úr umferðarhraða í hverfum borgarinnar.
  • Hjólavísar málaðir á Suðurgötuna til að auka vitund ökumanna um hjólreiðafólk.
  • Vísindagarðar samþykktir á Háskólasvæðinu, þar sem verða stúdentaíbúðir, þjónusta og fyrirtæki.
  • Aukið samstarf Reykjavíkurborgar, foreldrafélaga og íþróttafélaga í forvarnarmálum.
  • Víðtækt samráð um skólamál við íbúa.
  • Í netkosningu kusu íbúar Vesturbæjar fimm lýðræðisverkefni sem koma til framkvæmda sumarið 2010. Eftirtalin verkefni urðu fyrir valinu: Fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu. Setja trimmtæki við göngustíga á Ægisíðu. Koma upp nestisaðstöðu við Lynghaga og á Landakotstúni og setja lýsingu við listaverk á Hagatorg og við Hótel Sögu.

Tryggjum áframhaldandi uppbyggingu og framþróun í Vesturbæ með atkvæði okkar í borgarstjórnarkosningum laugardaginn 29. maí næstkomandi.


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica