Miðborgin
Miðborgin
Nokkur góð verkefni í miðborginni 2006-2010.- Efsti hluti Skólavörðustígs (milli Týsgötu og Njarðargötu) endurgerður.
- Ziemsenhúsið flutt á Grófartorg og endurgert. Umhverfi hússins fegrað.
- Neðsti hluti Vesturgötu gerður að vistgötu með rólegri umferð, gróðri og gangandi og hjólandi í forgangi.
- Nýr vegur lagður frá Hringbraut að Háskólanum í Reykjavík, sem tengir skólann, Hótel Loftleiðir og aðra starfsemi betur miðborginni.
- Uppbygging við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið hefur haldið áfram af fullum krafti.
- Forgangur strætó aukinn í Lækjargötu.
- Pósthússtræti gert að göngugötu á góðviðrisdögum.
- Endurgerð húsanna á Laugavegi 4 og 6 stendur sem hæst. Völundarverk sér um framkvæmdir.
- Lækjargata 2, 2a og Austurstræti 22 eru nú í endurbyggingu eftir bruna. Hornið mun senn verða eitt það glæsilegasta í borginni.
- Göngustígar um annað umhverfi við Lindargötu, Vatnsstíg og Skúlagötu í Skuggahverfi hafa verið lagfærðir.
- Starfshópur stofnaður til að gera tillögur um úrbætur vegna hávaða og annars ónæðis frá skemmtanalífinu í miðborginni.
- Hljómalindarreitur fékk andlitslyftingu.
- Jólamarkaður starfræktur í desember á Hljómalindarreit.
- Átak gert til að þrífa veggjakrot í miðborginni.
- Barnaskóli Hjallastefnunnar í Reykjavík opnaði í hverfinu. Fyrst á Suðurgötu en flutti í varanlegt húsnæði við Nauthólsveg 2009.
- Fiskmarkaður verður settur upp á gömlu höfninni.
- Verkefnið Bjarta Reykjavík lífgaði upp á miðborgina með ýmsum hætti.
- Hljómskálinn gerður að kaffihúsi yfir sumarmánuðina.
- Verkefnið Ljómandi borg er vetrarverkefni borgarinnar til að lýsa upp skammdegið. Til dæmis var fjöldi blikandi ljósa settur upp við stofnanir borgarinnar.
- Tjarnarbíó endurbyggt. Baksvið stækkað og viðbygging reist í porti.

Reykjavik