Langholts-, Voga og Laugarneshverfi
Verkin tala í Langholts-, Voga og Laugarneshverfi 2006–2010Á kjörtímabilinu var ráðist í stórátak við endurgerð skólalóða og skólahúsnæðis í hverfunum.
Langholtsskóli. Skólalóð endurgerð og sparkvöllur með gervigrasi lagður. Húsnæði endurskipulagt.
Laugalækjarskóli. Skólalóð endurgerð.
Laugarnesskóli. Skólalóð endurgerð og húsnæði endurskipulagt og bætt.
Vogaskóli. Viðbygging reist, eldra húsnæði endurskipulagt og skólalóð endurgerð.
Ásborg-Hlíðarendi. Leikskólalóð endurgerð.
Nýr ungbarnaleikskóli, Ársól, opnaður í Sólheimum.
Gervigrasvöllur Þróttar í Laugardal endurnýjaður.
Valbjarnarvöllur og umhverfi lagfært, stúka, girðingar o.fl.
Fullkomið fimleikahús Ármanns tekið í notkun.
Vatnsrennibraut Laugardalslaugar endurnýjuð.
Ýmsar endurbætur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, m.a. hesthús.
Þjóðarleikvangi skylminga komið fyrir í Baldurshaga.
Glæsilegt hjúkrunarheimili með 113 hjúkrunarrýmum er í byggingu við Suðurlandsbraut og verður tekið í notkun á árinu.
Hraðahindrandi aðgerðir og aðrar úrbætur á gönguleiðum skólabarna og eldri borgara.
Fjölgun og lenging 30 km/klst. svæða.
Lýðræðisverkefni. Kosið var á netinu og urðu eftirtalin verkefni fyrir valinu: Frekari hraðahindrandi aðgerðir á
umferðargötum við gönguleiðir skólabarna við Voga-, Langholts- og Laugarnesskóla. Hraðamælingarskilti á Reykjaveg, nálægt Laugarnesskóla og við Langholtsskóla.
Víðtækt samráð við íbúa vegna vinnu við nýtt aðalskipulag Reykjavíkurborgar.
Frístundakortið. Börnum og unglingum á aldrinum 6-18 ára gert kleift að taka þátt í uppbyggilegu frístundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
Áhersla lögð á gæði leikskóla- og skólastarfs þrátt fyrir óhjákvæmilega hagræðingu. Ánægja foreldra í borginni með starf beggja skólastiga jókst verulega milli áranna.
Aukið samstarf Reykjavíkurborgar, íþróttafélaga og foreldrafélaga í forvarnarmálum.
Frístundaheimili 6-9 ára barna. Biðlistar horfnir og húsnæðisaðstaða stórbætt.
Minnkum skutlið. Frístundastrætó sem ekur börnum úr skóla í frístundastarf.
Verkefni um skipulagða nágrannavörslu, innbrotsvarnir og aðgerðir gegn veggjakroti í samvinnu við lögreglu.
Tryggjum áframhaldandi uppbyggingu og framþróun í Langholts-, Voga- og Laugarneshverfi með atkvæði okkar í borgarstjórnarkosningunum laugardaginn 29. maí næstkomandi.

Reykjavik