Kjalarnes
Kjalarnes
Nokkur góð verkefni á Kjalarnesi 2006-2010.- Umferðaröryggismál. Áfram verður unnið að auknu öryggi á gönguleiðum skólabarna og gangandi vegfarenda almennt, m.a. með lengingu 30 km/klst. svæða og úrbótum á hættulegum stöðum.
- Tillaga hefur verið samþykkt um að draga úr umferðarhraða í hverfum borgarinnar.
- Gönguleiðir skólabarna kortlagðar og gerðar öruggari.
- Blikkskilti við Grundahverfi til að draga úr umferðarhraða. Undirgöng undir Vesturlandsveginn.
- Girðing meðfram veginum frá skólanum að hverfi sett upp.
- Íbúasamtökin og hverfisráðið hafa efnt til hreinsunardaga.
- Framkvæmdum við lóðir við leikskólann og grunnskólann er lokið.
- Unnið við úrbætur á hljóðvist í sal og kennslurýmum í Klébergsskóla.
- Framkvæmdir hafnar við útikennslustofu.
- Unnið að samrekstri skóla- og frístundastarfs í samvinnu við foreldra.
- Hverfisráðið hefur veitt styrki til ýmissa verkefna, t.d. til Ungmennafélagsins, nemenda í 10. bekk, nettengingu í
- Fólkvangi og til íbúasamtakanna.
- Áhersla hefur verið lögð á að tryggja gæði skóla- og leikskólastarfs í borginni þrátt fyrir hagræðingu. Samkvæmt könnunum hefur ánægja foreldra með skólastarf beggja skólastiga í borginni vaxið verulega milli áranna 2007 og 2009.
- Frístundakortið. Börnum og unglingum á aldrinum 6-18 ára gert kleift að taka þátt í uppbyggilegu frístundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
- Verkefni um skipulagða nágrannavörslu, innbrotsvarnir og aðgerðir gegn veggjakroti. Grundahverfið er fyrsta hverfið í borginni sem tekið hefur upp nágrannavörslu í heild sinni.
- Íþróttaaðstaða hefur verið bætt með tilkomu sparkvallarins og marki á leiksvæðinu.
- Leiktækjum verður komið fyrir í sundlauginni á næstunni.
- Víðtækt samráð við íbúa vegna vinnu við nýtt aðalskipulag.
- Aukið samstarf Reykjavíkurborgar, íþróttafélaga og foreldrafélaga í forvarnarmálum.
- Íþróttavöllur UMFK verður lagfærður í sumar.

Reykjavik