Reykjavík
Hlíðar

Hlíðar

Verkin tala í Hlíðunum 2006–2010

  • Umferðaröryggismál. Áfram verður unnið að auknu öryggi á gönguleiðum skólabarna og gangandi vegfarenda almennt, m.a. með lengingu 30 km/klst. svæða og úrbótum á hættulegum stöðum.
  • Í netkosningu kusu íbúar í Hlíðahverfi þrjú lýðræðisverkefni sem koma til framkvæmda sumarið 2010. Eftirtalin verkefni urðu fyrir valinu: Ný trimmtæki, betri leiktæki og nestisaðstaða á tveimur stöðum á Miklatúni. Að auki stendur til að fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu.
  • Ætlunin er að auka vægi lýðræðisverkefna frekar og gefa íbúum kost á að kjósa um fleiri atriði sem varða uppbyggingu og viðhald í hverfum borgarinnar.
  • Áhersla hefur verið lögð á að tryggja gæði skóla- og leikskólastarfs í borginni þrátt fyrir hagræðingu. Samkvæmt könnunum hefur ánægja foreldra með skólastarf beggja skólastiga í borginni vaxið verulega milli áranna 2007 og 2009.
  • Leikskólarnir Hamraborg, Nóaborg, Sólborg, Klambrar, Stakkaborg og Sólhlíð hafa allir fengið hvatningarverðlaun leikskólaráðs vegna framúrskarandi verkefna eða samstarfs.
  • Ný framkvæmdaáætlun Klambratúns/Miklatúns staðfest í samráði við íbúa. Meðal annars var vinnusvæði garðyrkju fært af miðju túnsins til verkbækistöðvar.
  • Lóðir við Hlíðaskóla og Hlíðaborg voru lagfærðar. Sparkvöllur með gervigrasi lagður við Hlíðaskóla á sama tíma.
  • Leiksvæði við hlið leikskólans Hamraborg lagfært í fyrra.
  • Sparkvöllur lagður við Háteigsskóla 2010.
  • Gangstétt fyrir framan leikskólann Nóaborg verður endurgerð 2010.
  • Grænt skref fyrir strætó var tekið í samvinnu við Vegagerðina þegar strætórein var gerð við Miklubraut.
  • Sérstakur sjóður settur á laggirnar fyrir leikskólabörn af erlendum uppruna sem styður við tungumálakennslu og fleira.
  • Í hverfinu er sérstaklega gott samstarf á milli leik- og grunnskóla og þróunarstarf mikið í því samhengi.
  • Nýtt skipulag gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar var ákveðið í sátt milli stjórnmálaflokka og íbúa.
  • Grunnskóla Hjallastefnunnar við Nauthólsveg veitt starfsleyfi.
  • Víðtækt samráð við íbúa vegna vinnu við nýtt aðalskipulag Reykjavíkur.
  • Aukið samstarf Reykjavíkurborgar, íþróttafélaga og foreldrafélaga í forvarnarmálum.
  • Tómstundastarf fyrir börn og unglinga hefur verið eflt og húsnæðisaðstaða bætt.
  • Biðlistum eftir frístundaheimilum 6-9 ára barna hefur verið eytt.
  • Minnkum skutlið. Reykjavíkurborg styrkir nú íþróttafélög til að reka frístundastrætó sem ekur börnum úr skóla í frístundastarf.
  • Verkefni um skipulagða nágrannavörslu, innbrotsvarnir og aðgerðir gegn veggjakroti í samvinnu við lögregluna.
  • Frístundakortið. Börnum og unglingum á aldrinum 6-18 ára gert kleift að taka þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
Tryggjum áframhaldandi uppbyggingu og framþróun í Hlíðunum með atkvæði okkar í borgarstjórnarkosningunum laugardaginn 29. maí næstkomandi.

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica