Grafarvogur
Grafarvogur
Nokkur góð verkefni í Grafarvogi 2006–2010.- Öflug íþróttastarfsemi tryggð í Egilshöll með samningum 2009 og 2010, sem felur í sér stóraukna notkun Fjölnis og Bjarnarins í þágu barna- og unglingastarfs í Grafarvogi, m.a. knattspyrnuæfingar, skauta, fimleika, frjálsar íþróttir og takwondo. Gengið frá lóð Egilshallar og aðkoma stórbætt.
- Nýtt og endurbætt frístundaheimili fyrir fötluð börn í Egilshöll.
- Tómstundastarf fyrir börn og unglingaí hverfinu hefur verið eflt og húsnæðis-aðstaða bætt. Biðlistum eftir frístunda-heimili 6–9 ára barna hefur verið eytt.
- Framkvæmdum lýkur við endurgerð lóðar Foldaskóla 2010.
- Leikskólalóðir Foldaborgar og Brekkuborgar endurgerðar 2007.
- Aðstaða í Íþróttamiðstöð Grafarvogs við Dalhús endurbætt og sætum fyrir
- áhorfendur komið fyrir við knattspyrnuvöllinn 2007–08.
- Körfuknattleiksvöllur úr gúmmíefni lagður við Rimaskóla og sparkvöllur með gervigrasi lagður við Hamraskóla 2008.
- Uppbygging útivistarsvæðis í Gufunesi fyrir alla aldurshópa. Gamla hlaðan endurbætt og félagsaðstaða útbúin þar fyrir hverfisbúa.
- Framkvæmdir hafnar við byggingu 5.048 fm menningar- og þjónustumiðstöðvar í Spönginni fyrir félagsstarf í Grafarvogi.
- Hafist verður handa vegna viðbyggingu Korpuskóla árið 2010.
- Undirbúningur stendur yfir vegna viðbyggingar Rimaskóla.
- Aukið umferðaröryggi. Áfram verður unnið að auknu öryggi á gönguleiðum skólabarna og vegfarenda almennt, m.a. með stækkun 30 km svæða og úrbótum á vástöðum.
- Framkvæmdir við gerð hljóðmana og hljóðveggs við Borgarveg.
- Stefnt að lagningu göngustígs meðfram Víkurvegi á móts við lóð Egilshallar á árinu.
- Minnkum skutlið. Reykjavíkurborg styrkir nú íþróttafélög til að reka frístundastrætó, sem ekur börnum úr skóla í frístundastarf.
- Betri strætó. Breytingar verða gerðar á strætisvagnaleiðum í Grafarvogi haustið 2010 í því skyni að bæta þjónustu við farþega og styrkja tengingar innan hverfisins við frístundastarf barna og unglinga.
- Eftirtalin verkefni urðu fyrir valinu í netkosningu íbúa Grafarvogs og koma til framkvæmda sumarið 2010: fjölgun bekkja og ruslastampa í Grafarvogi, gróðursetning, trimmtæki og áningarstaður á Gufunesi og trimmtæki, drykkjarfontur og nestisaðstaða við útivistarstíg í norðanverðu hverfinu. Ætlunin er að auka vægi lýðræðisverkefna frekar og gefa íbúum kost á kjósa um fleiri mál sem tengjast uppbyggingu og viðhaldi í hverfum borgarinnar.
- Verkefni um skipulagða nágrannavörslu, innbrotsvarnir og aðgerðir gegn veggja-kroti í samvinnu við lögregluna.
- Sparkvöllur með gervigrasi verður lagður við Foldaskóla 2011.
- Leikskólinn Bakki fékk hvatningarverðlaun leikskólaráðs árið 2008 fyrir þrjú metnaðarfull verkefni; Umhverfisverkefnið Flóð og fjöru , alþjóðlega samstarfs-verkefnið eTwinning og heimasíðugerð.

Reykjavik