Grafarholt og Úlfarsárdalur
Grafarholt og Úlfarsárdalur
Nokkur góð verkefni í Grafarholti og Úlfarsárdal 2006–2010.- Bygging Sæmundarskóla hafin 2007 og fyrsti áfangi tekinn í notkun haustið 2009. Annar og þriðji áfangi, unglingaálma og íþróttahús, teknir í notkun haustið 2010.
- Loforð sjálfstæðismanna um grasæfingavöll í Leirdal efnt sumarið 2006. Völlurinn verður lagfærður og stækkaður sumarið 2010.
- Skólahald tryggt í Úlfarsárdal. Bygging samrekins leikskóla, grunnskóla og frístundaheimilis í Úlfarsárdal hófst 2008. Skólinn verður tekinn í notkun haustið 2010 og á skólalóðinni verður sparkvöllur með gervigrasi.
- Viðbygging leikskólans Reynisholts tekin í notkun 2008. Forgangsverkefni að tryggja viðunandi íþróttaaðstöðu í hverfinu, einkum fyrir börn og ungmenn. Viðræður standa yfir við Fram.
- Tómstundastarf fyrir börn og unglinga í hverfinu hefur verið stóreflt og húsnæðisaðstaða bætt. Félagsmiðstöðin Fókus og frístundaheimilið Stjörnuland fluttu í nýtt og glæsilegt húsnæði við Kirkjustétt 2008. Biðlistum eftir frístundaheimili hefur verið eytt.
- Umferðaröryggismál. Áfram verður unnið að auknu öryggi á gönguleiðum skólabarna og gangandi vegfarenda almennt, m.a. með stækkun 30 km svæða og úrbótum á vástöðum.
- Minnkum skutlið. Reykjavíkurborg styrkir nú íþróttafélög til að reka frístundastrætó, sem ekur börnum úr skóla í frístundastarf.
- Göngu- og hjólreiðastígar. Unnið hefur verið að lagningu nýrra göngustíga og tengingum milli hverfa. Göng grafin undir Reynisvatnsveg á móts við Grafarholt, göngubrú yfir Úlfarsá smíðuð og stígar tengdir milli Grafarholts og Úlfarsárdals.
- Áframhaldandi uppbygging í Úlfarsárdal, m.a. við gangstéttalagningu, lýsingu, bíla-stæði, ræktun, gróðursetningu og frágang.
- Í netkosningu kusu íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal þrjú lýðræðisverkefni sem koma til framkvæmda sumarið 2010. Eftirtalin verkefni urðu fyrir valinu: trimm-tæki í Leirdal, nestisaðstaða í Leirdal og gróðursetning í hverfinu í samráði við hverfisráð. Ætlunin er að auka vægi lýðræðisverkefna frekar og gefa íbúum kost
- á kjósa um fleiri atriði sem varða uppbyggingu og viðhald í hverfum borgarinnar.
- Verkefni um skipulagða nágrannavörslu, innbrotsvarnir og aðgerðir gegn veggjakroti í samvinnu við lögregluna.

Reykjavik