Fossvogur, Háaleitis- og Bústaðahverfi
Fossvogur, Háaleitis- og Bústaðahverfi
Verkin tala í Fossvogi, Háaleitis- og Bústaðahverfi 2006–2010
- Leikskólinn Vinagerði fær nýja lóð sumarið 2010.
- Framkvæmdir við nýja viðbyggingu FÁ hefjast.
- Umferðaröryggismál. Áfram verður unnið að auknu öryggi á gönguleiðum skólabarna og gangandi vegfarenda almennt, m.a. með lengingu 30 km/klst. svæða og úrbótum á vástöðum.
- Gerður sérstakur hjólastígur frá svæði Skógræktarfélagsins að Fossvogsskóla.
- Öryggi gangandi vegfarenda aukið við Réttarholtsskóla, þrenging og hraðahindrun sett á Réttarholtsveg.
- Umferðarljós samstillt og tengd við miðlæga stýringu umferðarljósa.
- Uppbygging og frágangur á nýju hverfi við Sléttuveg á lokastigum.
- Glæsilegur gervigrasvöllur var tekinn í notkun í Víkinni.
- Endurgerð leiksvæðis við Heiðargerði og Hlíðargerði hefst sumarið 2010.
- Deiliskipulag Fossvogsdals er í vinnslu með áherslu á að vernda yfirbragð hverfisins.
- Skipulag Skeifunnar er í endurskoðun. Skógarborg, nýtt leikskólahús á nýjum stað, tekið í notkun í Fossvogi.
- Áhersla hefur verið lögð á að tryggja gæði skóla- og leikskólastarfs í borginni þrátt fyrir hagræðingu. Samkvæmt könnunum hefur ánægja foreldra með skólastarf beggja skólastiga í borginni vaxið verulega milli áranna 2007 og 2009.
- Leikskólarnir Jörfi og Garðaborg fengu báðir hvatningarverðlaun leikskólaráðs vegna framúrskarandi verkefna.
- Aukið samstarf Reykjavíkurborgar, íþróttafélaga og foreldrafélaga íforvarnarmálum.
- Tómstundastarf fyrir börn og unglinga hefur verið eflt og húsnæðisaðstaða bætt.
- Biðlistum eftir frístundaheimilum 6-9 ára barna hefur verið eytt.
- Aukið umferðaröryggi. Áfram verður unnið að auknu öryggi á gönguleiðum skólabarna og gangandi vegfarenda almennt, m.a. með lengingu 30 km/klst. svæða og úrbótum á hættulegum stöðum.
- Minnkum skutlið. Reykjavíkurborg styrkir nú íþróttafélög til að reka frístundastrætó, sem ekur börnum úr skóla í íþróttastarf.
- Verkefni um skipulagða nágrannavörslu, innbrotsvarnir og aðgerðir gegn veggjakroti í samvinnu við lögregluna.
- Víðtækt samráð við íbúa vegna vinnu við nýtt aðalskipulag Reykjavíkur.
- Fyrirheit gefið um stækkun athafnasvæðis Víkings til austurs.
- Glæsilegur skíðaskáli Víkings og ÍR í Bláfjöllum tekinn í notkun.
- Í netkosningu kusu íbúar í Háaleitis- og Bústaðahverfi þrjú lýðræðisverkefni sem koma til framkvæmda sumarið 2010. Eftirtalin verkefni urðu fyrir valinu: Að fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu, trimmtæki í Fossvogsdal, nestisaðstaða í Garðaflöt við Hólmgarð og nestisaðstaða í Grundargerðisgarði.
- Að auki stendur til að lagfæra opið svæði milli Háaleitisbrautar og Síðumúla. Ætlunin er að auka vægi lýðræðisverkefna frekar og gefa íbúum kost á að kjósa um fleiri atriði sem varða uppbyggingu og viðhald í hverfum borgarinnar.

Reykjavik