Breiðholt
Breiðholt
Verkin tala í Breiðholti 2006–2010- Víðtækt hreinsunar- og viðhaldsátak í Breiðholti. M.a. hreinsað til á opnum svæðum og óhirtum lóðum. Gangstéttir endurnýjaðar, t.d. á löngum kafla við Arnarbakka.
- Hólabrekkuskóli. Lóð endurnýjuð. Upphitaður sparkvöllur með gervigrasi tekinn í notkun.
- Fellaskóli. Lóð verður endurnýjuð sumarið 2010.
- Seljaskóli. Viðbygging reist og eldra húsnæði endurskipulagt. Undirbúningur og hönnun vegna endurnýjunar skólalóðar er hafinn. Endurbætur á eldvarnarbúnaði á árinu 2010.
- Breiðholtsskóli. Upphitaður sparkvöllur með gervigrasi tekinn í notkun. Skólalóðin verður endurnýjuð samhliða framkvæmdum við fyrirhugaða viðbyggingu skólans. Eldvarnarmál í skólanum lagfærð.
- Ölduselsskóli. Viðbygging reist og eldra húsnæði endurskipulagt. Upphitaður sparkvöllur verður lagður á skólalóðinni sumarið 2010.
- Viðbygging reist við leikskólann Hraunborg við Hraunberg.
- Frístundakortið. Börnum og unglingum á aldrinum 6–18 ára gert kleift að taka þátt í uppbyggilegu frístundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
- Frístundaheimili. Átak hefur verið gert í húsnæðismálum frístundaheimila í Breiðholti á kjörtímabilinu og biðlistum eytt.
- Glæsileg æskulýðsmiðstöð opnuð í nýju húsnæði við Kleifarsel með frístundaheimili fyrir 6–9 ára börn, sérkennsludeild og tónlistarskóla undir sama þaki.
- Leiksvæði við Lambasel gert 2010.
- Fjölbrautaskólinn í Breiðholti. Viðbygging reist í samvinnu borgar og ríkis.
- Seljahlíð, hjúkrunarheimili. Eldra húsnæði endurskipulagt.
- Gervigrasvöllur ÍR í Mjóddinni tekinn í notkun.
- Leiknir. Glæsilegt félagshús byggt og tekið í notkun. Vellir lagfærðir, girðingar reistar og áhorfendasæti sett upp við keppnisvöll.
- Íþróttahús ÍR við Skógarsel. Sjálfstæðisflokkurinn flutti tillögur um málið 2004 og 2005. Viðræður standa yfir milli ÍR og borgarinnar um fjármögnun verksins og framkvæmdir.
- Íþróttahús Seljaskóla. Stefnt að parketlagningu í sal sumarið 2010.
- Glæsilegur skíðaskáli ÍR og Víkings í Bláfjöllum tekinn í notkun.
- Líkamsræktarstöð í Breiðholti. Rekstur líkamsræktarstöðvar við Breiðholtslaug er í útboðsferli. Í framtíðinni er stefnt að því að slík líkamsræktarstöð verði í glæsilegri viðbyggingu við laugina.
- Minnkum skutlið. Reykjavíkurborg styrkir íþróttafélög til að reka frístundastrætó, sem ekur börnum úr skóla í frístundastarf.
- Umferðaröryggi. Unnið að lengingu 30 km/klst. svæða í íbúðarhverfum og úrbótum á gönguleiðum skólabarna.
- Lýðræðisverkefni. Í netkosningu meðal Breiðhyltinga voru eftirtalin verkefni valin: Bekkjum og ruslastömpum verður fjölgað í hverfinu. Trimmtækjum og/ eða nestisaðstöðu verður komið fyrir við Steinasel-Holtasel, Elliðaárdal-Fell og Suðurfell. Gróðursetning í samráði við hverfisráð.
- Suðurfell. Gróðursetning í samráði við hverfisráð.
- Verkefni um skipulagða nágrannavörslu, innbrotsvarnir og aðgerðir gegn veggjakroti.
- Menning. Á kjörtímabilinu hafa útsýnisskilti verið sett upp í Breiðholti, unnið er að uppsetningu fróðleiksskiltis við rústir gamla Breiðholtsbæjarins og að flóðlýsingu gamalla húsa í Árbæjarsafni.
- Áhersla lögð á að tryggja gæði skólastarfs þrátt fyrir óhjákvæmilega hagræðingu. Ánægja foreldra með skólastarf í borginni jókst um 8% milli áranna 2007 og 2009.
- Víðtækt samráð við íbúa vegna vinnu við nýtt aðalskipulag Reykjavíkur.
- Aukið samstarf Reykjavíkurborgar, íþróttafélaga og foreldrafélaga íforvarnarmálum.

Reykjavik