Reykjavík
Árbær
  • hverfi_arbaer

Árbær

Nokkur góð verkefni í Árbæ, Selási, Ártúnsholti og Norðlingaholti 2006-2010.

  • Stórbætt aðstaða fimleikadeildar og karatedeildar Fylkis með tilkomu íþróttahúss í Norðlingaholti haustið 2010.
  • Húsið verður einnig nýtt í þágu barna- og unglingastarfs Íþrótta- og tómstundaráðs í hverfinu.
  • Tillögur um úrbætur á áhorfendaaðstöðu Fylkis við Fylkisveg og stækkun á grasæfingasvæði eru í skipulagsferli.
  • Sparkvöllur með gervigrasi lagður við Ártúnsskóla 2008.
  • Sparkvöllur með gervigrasi lagður við Árbæjarskóla 2009.
  • Áfram unnið við uppbyggingu og frágang í Norðlingaholti, t.d. við lagningu sparkvallar, gangstétta og göngustíga, ræktun, hreinsun, gróðursetningu og frágangi. Reiknað er með að frágangi borgarlands í hverfinu verði að fullu lokið árið 2012.
  • Fyrsti áfangi Norðlingaskóla tekinn í notkun haustið 2010, 2.200 m2. kennsluálma á tveimur hæðum.
  • Sambyggður grunn- og leikskóli verður samtals 7.500 m2. og mun hýsa allt að 450 nemendur í 1.-10 bekk og 110 leikskólabörn.
  • Áætlaður heildarkostnaður er 2.500 milljónir króna.
  • Viðbygging reist við leikskólann Rofaborg og lóð endurgerð 2007-2008.
  • Rauðhóll, fjögurra deilda leikskóli, reistur í Norðlingaholti.

Tryggjum áframhaldandi uppbyggingu og framþróun í Árbæ, Selási, Ártúnsholti og Norðlingaholti með atkvæði okkar í borgarstjórnarkosningum laugardaginn 29. maí næstkomandi.

Tengt efni: Upplýsingar um hverfið


 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica