Reykjavík
Frambjóðendur

Hildur Sverrisdóttir

Hildur Sverrisdóttir

Hildur Sverrisdóttir

Lögfræðingur

9. sæti

 
_MG_0558

Hildur Sverrisdóttir

Lögfræðingur

Hver eru helstu málefni þín innan borgarinnar?

Ég hef áhuga á atvinnulífinu og tel það vera mikilvægan málaflokk. Þó að það sé ekki endilega hins opinbera að búa til öll verkefnin þá má ekki gleyma því að við verðum að búa til atvinnuskapandi umhverfi í borginni. Það er okkar að búa til kræsilegt umhverfi til að stofna fyrirtæki. Fólk með hugmyndir og dirfsku getur búið til eitthvað stórkostlegt og við berum ábyrgð á því að hlúa að þeim verkefnum. Það er einnig stutt í áhuga á félagsmálum og ungmennum þar sem ég vann í mörg ár í Hinu Húsinu sem einn af frumkvöðlum Jafningjafræðslunnar. Á undanförnum mánuðum hef ég auk þess verið að kynna mér beint lýðræði. Mér þykir það mjög spennandi vettvangur og öflugt skref í átt til aukins lýðræðis og er mjög spennt fyrir því að skoða það mál frekar.

 

Fylgdu okkur á Facebook

Myndirnar á Flickr

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica