Hanna Birna hefur starfað í borgarstjórn frá árinu 2002. Hún segir borgarstjórastarfið eitt það áhugaverðasta og mest gefandi sem stjórnmálamaður fær að takast á við. "Ég lít á það sem algjör forréttindi að starfa fyrir Reykjavík og Reykvíkinga. Í senn er þetta starf þar sem ég þarf að takast á við risastór verkefni og stórar ákvarðanir en líka starf þar sem fólk leitar til mín með lausnir á viðfangsefnum í sínu daglega lífi, sem um leið geta gert lífið í borginni betra. Foreldrar sem vilja meira val um þjónustu fyrir barnið sitt, ungt fólk sem vill með hugmyndum sínum bæta enn við okkar fjölbreytilegu borg eða eldri borgarar sem með visku sinni og reynslu koma með ábendingar um ýmislegt sem betur má fara. Þetta er því fyrst og fremst mjög ánægjulegt þjónustustarf fyrir borgarbúa sem mér finnst einstaklega skemmtilegt að fá að sinna. Það er ekkert annað sem mig langar að gera í dag.