Umhverfis-, samgöngu- og skipulagsmál. Þessi mál eru öll nátengd og þurfa að vera það til að við getum byggt upp góða borg.
Hver eru stærstu verkefnin sem þú hefur komið að?Stóra verkefnið í þessum málaflokki eru Grænu skrefin. Við unnum stíft að undirbúningnum fyrsta árið eftir að við tókum við borginni og kynntum þau vorið 2007. Það hefur gengið vonum framar að hrinda þeim í framkvæmd og við erum búin að klára 95% af Grænu skrefunum og höfum meira að segja sett okkur ný markmið sem munu ná inn á næsta kjörtímabil. Allt hefur þetta verið unnið í samvinnu allra flokka og skipt miklu fyrir borgina.