Hver eru helstu málefni þín innan borgarinnar?
Nærtækast eru þau mál sem ég hrærist í frá degi til dags, þ.e fjölskyldumálin. Ég vil að borgarbúar séu ánægðir með sína borg og séu sáttir og líði vel að búa í Reykjavík. Íþrótta-, mennta- og æskulýðsmál standa mér einnig nærri. Ég vil sjá breytingar í menntamálum þar sem stuðlað er m.a. að aukinni hreyfingu barna og að betur sé tekið á næringu þeirra í skólum. Mér finnst auk þess mikilvægt að styrkja hvert hverfi fyrir sig enn frekar, þannig að fólk þurfi ekki að leita langt eftir þjónustu, hvort sem um er að ræða íþróttir, verslun, skóla eða tómstundamál. Að í hverju hverfi sé í raun allt til alls. Sömuleiðis er brýnt að huga að atvinnumálum í borginni því það er auðvitað áhyggjuefni að um 10% Reykvíkinga eru án atvinnu í dag.