Reykjavík
Frambjóðendur

Áslaug María Friðriksdóttir

Áslaug María Friðriksdóttir

Áslaug María Friðriksdóttir

Framkvæmdastjóri

7. sæti

 
_MG_0343

Áslaug María

Hver eru helstu málefni þín innan borgarinnar?

Ég er formaður Menningar- og ferðamálaráðs. Þannig að ég hef einbeitt mér undanfarið að þeim málum.

Hvað hefur áunnist í þessum málaflokki á kjörtímabilinu?

Margt hefur áunnist. Þátttaka almennings í menningarviðburðum hefur aukist verulega og fleiri heimsækja söfnin og taka þátt í menningarviðburðum nú en áður. Annar stór áfangi er endurskoðun menningarstefnu borgarinnar sem hefur bætt yfirsýn okkar yfir málaflokkinn. Menning er mun breiðara hugtak en einungis listir. Að eiga framúrskarandi listamenn er auðvitað gífurlega mikils virði en menningarmálin snúast um mjög fjölbreytta hluti, allt frá mannlífi í borginni yfir í að styrkja einstaka listviðburði. Ferðaþjónustan er vaxandi atvinnugrein og nú erum við byrjuð að endurskoða ferðamálastefnuna. Menningar- og ferðamálin tengjast að sjálfsögðu. Í Reykjavík er gróskumikið tónlistarlíf sem í felast mikil tækifæri. Ferðamenn velja áfangastaði út frá áhugamálum sínum og íslensk tónlist hefur til dæmis haft mikil áhrif á það að svo margir telja Ísland áhugverðan áfangastað.

 

Fylgdu okkur á Facebook

Myndirnar á Flickr

 

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica