Ályktanir Landsfundar 2009
Ályktun um viðskipta- og neytendamál
- Íslenskt atvinnulíf og stjórnkerfi þarf að ávinna sér traust og virðingu að nýju innanlands sem utan. Við Íslendingar verðum að standa þétt saman á þessum erfiðu tímum og vinna að uppbyggingu til framtíðar.
- Með skynsamlegri nýtingu auðlinda og tækifærum til nýsköpunar verður hagsmunum atvinnulífsins, launafólks og neytenda best borgið. Við þurfum að nýta reynsluna en ekki láta erfiðleika hneppa okkur í fjötra einangrunar og fábreytni. Afturhvarf til aukinna ríkisafskipta og hafta á frjáls viðskipti er leið ótta og vonleysis. Ný framtíðarsýn þarf að byggjast á grunngildum sjálfstæðisstefnunnar: frelsi, manngildi og skýrum leikreglum.
- Almenningur og fyrirtækin í landinu eru í miklum vanda og mikilvægt er að íþyngja þeim ekki frekar með flóknara regluverki og auknum álögum. Tryggja þarf rekstrargrundvöll fyrirtækja í landinu því þau eru undirstaða atvinnu og velmegunar. Fyrirtæki og heimili þurfa stöðugleika þar sem unnt er að gera raunhæfar áætlanir til framtíðar.
-
- Samkeppnishæfur íslenskur iðnaður, framleiðsla, verslun og þjónusta skapa bæði atvinnu og gjaldeyri. Öflug staða atvinnuveganna er mikilvægasti bakhjarl íslensku þjóðarinnar.
- Standa þarf vörð um samkeppni, nú þegar auknar líkur eru á samruna fyrirtækja sem eru starfandi í sömu atvinnugreinum til að koma í veg fyrir einokun og fákeppni og stuðla að hagstæðu vöruverði fyrir neytendur.
- Mörg fyrirtæki hafa lent og munu lenda í eigu banka. Nauðsynlegt er að bankarnir upplýsi um fyrirtæki í þeirra eigu og setji þau í opinbert söluferli. Lágmarka þarf þann tíma sem fer í það ferli og tryggja gegnsæi.
Aðgerðir
- Endurskoða þarf tolla og vörugjöld til hagsbóta fyrir neytendur. .
- Afnema þarf gjaldeyrishöft sem fyrst. Frjáls gjaldeyrisviðskipti eru grundvöllur heilbrigðra viðskipta, atvinnu í landinu og aukins innstreymis fjármagns.
- Mikilvægt er að vextir lækki.
- Lög og reglur í viðskiptalífi og á neytendamarkaði þurfa að vera einfaldar, skýrar og gegnsæjar og eftirlitsstofnanir skilvirkari.
- Styrkja þarf starfsemi banka og tryggja dreift eignarhald þeirra.
- Koma þarf í veg fyrir kennitöluflakk með markvissum aðgerðum
- Mikilvægt er að endurskoða strax stefnuna í peningamálum þjóðarinnar með það að markmiði að auka stöðugleika.
- Efla þarf samkeppnis- og skattaeftirlit.
· Strax á næsta þingi verði lagt fram frumvarp til laga um tímabundna flutningsjöfnunarstyrki

Reykjavik