Sjálfstæðisflokkurinn
Í brennidepli
Ályktanir landsfundar 2009
Ályktanir Landsfundar 2009

Ályktun um málefni eldri borgara

  1. Landsfundur leggur áherslu á heildstæða stefnu í málefnum aldraðra sem byggist á jafnrétti og mann­réttindum. Eldri borgarar hafa í æ ríkari mæli haslað sér völl í umræðum og stefnumörkun um eigin málefni og áframhaldandi samvinna stjórnvalda við öflug samtök þeirra um allt land er mikilvæg.  
  2. Landsfundur fagnar því átaki sem gert var í lífeyrismálum eldri borgara með breytingum á almanna­trygg­ingalögum í desember 2006 og að hjón/sambýlisfólk njóta nú fullra lífeyrisgreiðslna almanna­trygginga án tillits til tekna maka.  Fundurinn harmar eignarýrnun almennu lífeyrissjóðanna sem kemur til með að koma illa niður á eldri borgurum í formi skertra lífeyrisgreiðsla.
  3. Landsfundur leggur til að frítekjumörk fyrir lífeyrissjóðstekjur verði 25.000 kr. á mánuði og skerði ekki greiðslur frá almannatryggingum og leggur áherslu á að kjör þeirra ellilífeyrisþega sem verst eru settir fjárhagslega verði þannig bætt.
  4. Þeir sem eru 67 ára og eldri geti haft árlegar launatekjur og/eða fjármagnstekjur allt að 1,2 milljónum króna án þess að það skerði lífeyri almannatrygginga. Það er bæði lífeyrisþegum og samfélaginu dýrmætt að eldri borgarar geti tekið virkan þátt á vinnumarkaði, hafi þeir vilja og starfskrafta til.
  5. Landsfundur leggur áherslu á að hraðað verði áætlunum um fjölgun hjúkrunarrýma og einbýli á næstu árum. Þurfi annað hjónanna hjúkrun verði þeim ekki stíað í sundur. Þá verði lögð áhersla á að fjölga öryggis- og þjónustuíbúðum, dagvistunarrýmum fyrir aldraða,  hvíldarinnlögnum  og endurhæfingu á hjúkrunarheimilum.
  6. Hjúkrunarheimili verði skipulögð með það í huga að þau eru heimili einstaklinga sem þar dvelja og þurfa á mikilli þjónustu að halda. Laga þarf lausnina að einstaklingnum en ekki einstaklinginn að lausninni.
  7. Gerðir verði skriflegir þjónustusamningar við allar öldrunarstofnanir, þar sem settar verði fram lág­marks­kröfur um magn og gæði þeirrar þjónustu og aðbúnað íbúa, sem greitt verði fyrir. Áríðandi er að sjálfseignarstofnanir sem veita heilbrigðisþjónustu fái greitt sanngjarnt verð fyrir það húsnæði sem þær leggja til. Sá kostnaður sem tengist aðhlynningu hins aldraða og sjúka verði áfram greiddur í formi daggjalda.
  8. Landsfundur tekur undir hugmyndir Samtaka eldri sjálfstæðismanna um að opna möguleika á eigin fjármögnun eldri borgara á húsnæði sínu á hjúkrunarheimili og jafnframt að eldri borgurum verði gefinn kostur á sjálfsfjármögnun á byggingu öryggis- og þjónustuíbúða fyrir eldri borgara. 
  9. Landsfundur leggur til að þau málefni aldraðra sem hafa verið á hendi ríkisins færist yfir til sveitar­félaganna og verði á einni hendi heima í héraði þar sem því verður við komið. Heimaþjónusta við aldraða verði efld, meðal annars með samþættingu heimahjúkrunar og heimaþjónustu með það að markmiði að aldraðir geti dvalið sem lengst inn á heimilum sínum og öryggisþjónusta verði í boði allan sólahringinn. Kanna þyrfti t.d. möguleika á að koma á þjónustuteymi „á hjólum“, þ.e. fjarskiptatengdri bifreið, sem fer um svæði þar sem þjónustunnar er þörf, og væri hún tengd við sjúkrahús eða hjúkrunarstofnun og undir yfirstjórn stofnunarinnar á viðkomandi svæði.
  10. Landsfundur leggur til að fleiri aðilar en hið opinbera komi að hjúkrunar- og heimilisþjónustu. Slík þjónusta verður þó alltaf á ábyrgð hins opinbera.
  11. Landsfundur vill að við fráfall ellilífeyrisþega haldi eftirlifandi maki/sambúðarmaki óskertum lífeyri hins látna frá TR í 6 mánuði sem skerðast þá í áföngum þar til að 12 mánuðum liðnum, en aldrei meira en sem nemur helmingi af sameiginlegum lífeyri hjóna við fráfall maka.

 

Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica