Ályktun um menningarmál
- Lista- og menningarlíf þjóðarinnar hefur blómstrað á undanförnum árum. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á mikilvægi menningararfs þjóðarinnar og gildi hans. Fjölmiðlar eru snar þáttur í daglegu lífi fólks og því mikilvægir til að tryggja lýðræðislega umræðu.
Þjóðtungan íslensk
- Íslensk tunga er sameiningartákn þjóðarinnar Landsfundur leggur áherslu á að nýbúar hafi tækifæri til að læra íslensku, því aðlögun þeirra að íslensku samfélagi er líklegri til að ganga hraðar og betur nái þeir tökum á tungumálinu.
Fjölmiðlar
Landsfundur telur nauðsynlegt að tryggja að gegnsæi ríki ávallt varðandi eignarhald á fjölmiðlum og leggur áherslu á að sett verði skýr og skilmerkileg lög þar að lútandi, m.a. í því augnamiði að kveðið sé á um dreifða eignaraðild.
Landsfundur vill standa vörð um Ríkisútvarpið ohf., og starfsemi þess en umsvif hins opinbera mega ekki hamla frjálsri samkeppni og raska rekstrargrundvelli fjölmiðlafyrirtækja. Því leggur landsfundur til að þátttaka Rúv ohf., á auglýsingamarkaði verði takmörkuð verulega. Landsfundur leggur til að aðgengi að gögnunum og efni Rúv verði opnað eins og kostur er.
Menning og listir
- Landsfundur telur mikilvægt að halda áfram að hlúa að þeim grunni sem lagður hefur verið í lista- og menningarlífi þjóðarinnar. Mikilvægt er að standa vörð um menningarstofnanir okkar sem margar hverjar hafa verið að byggja upp þekkingu og reynslu áratugum saman.
- Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að opinber stuðningur við lista- og menningarstarfsemi, eins og aðrar atvinnugreinar, skuli ævinlega vera gegnsær og byggður á traustum áætlunum og minnir á að opinbert fjármagn eitt og sér tryggir ekki árangur á menningarsviði.
- Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á stuðning við skapandi listir en hvetur jafnframt til að lög frá árinu 1991 um listamannalaun verði endurskoðuð með það að markmiði að taka upp verkefnatengda listsköpunarsjóði.
Íslensk menning á alþjóðavettvangi
- Vel kynnt íslensk menning ýtir undir jákvæða mynd af landi og þjóð. og í henni felast fjölbreytileg verðmæti . Landsfundur leggur áherslu á að listamenn njóti stuðnings í að koma sér á framfæri erlendis.
Saga og menning
Landsfundur leggur áherslu á að þjóðin sé ávallt vel upplýst og meðvituð um sögu sína og menningararf.
Aðgerðir
- Landsfundur vill að íslenskan verði lögfest í stjórnarskrá sem þjóðtunga.
- Landsfundur vill lög um gagnsæi varðandi eignarhald fjölmiðla.
- Landsfundur vill að gögn og efni sem RÚV hefur safnað verði aðgengileg almenningi.
- Landsfundur vill að lög um listamannalaun verði endurskoðuð.

Reykjavik