Sjálfstæðisflokkurinn
Í brennidepli
Ályktanir landsfundar 2009
Ályktanir Landsfundar 2009

Ályktun um fjölskyldumál

Fjármál heimilanna, húsnæðismál og búseta

  1. Sjálfstæðisflokkurinn vill gera fólki kleift að búa í eigin húsnæði með það að markmiði að treysta fjárhagslegt sjálfstæði þess.. Nú þegar hefur verið gripið til tímabundinna aðgerða til að létta á greiðslubyrði íbúðalána en nauðsynlegt er að koma með varanlega lausn. Sjálf­stæð­is­flokkurinn telur að afnema  eigi gjöld ríkisins  við fjármögnun íbúðar­húsnæðis svo sem stimpilgjöld. Tryggja þarf að Íbúðalánasjóður geti sinnt mikilvægu félagslegu hlutverki sínu. Í kjölfar fjármálakreppunnar er ljóst  að leigumarkaðurinn gegni mikilvægara hlutverki en áður. Því telur Sjálfstæðisflokkurinn að standa þurfi vörð um húsaleigumarkaðinn með upplýsingum um leigumarkaðinn og eflingu húsaleigubóta  Sjálfstæðisflokkurinn á að beita sér fyrir því að   lög um fjöleignahús og húsaleigulög  verði endurskoðuð.   Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að auka fjármálafræðslu fyrir ungt fólk í gegnum skóla og heimili.  Sjálfstæðisflokkurinn vill halda áfram endurskoðun gjaldþrotalaganna með það að markmiði að auð­velda fólki greiðsluaðlögun og auka möguleika þess á að vinna sig út úr fjárhagserfiðleikum, án þess að til gjaldþrots komi. Þá er nauðsynlegt að löggjöfin heimili þeim sem lenda í gjaldþroti að hefja aftur eignamyndun. Mikilvægt er að gjaldþrotalögin verði endurskoðuð með það fyrir augum að fyrning krafna á hendur skuldara verði stytt í fimm ár og sá fyrningarfrestur verði endanlegur
  2. Sjálfstæðisflokkurinn stuðli að fjölbreyttum valkostum til að koma til móts við fólk í fjárhagserfiðleikum s.s að það geti nýtt sér séreignarsparnað sinn úr lífeyrissjóðum landsins sem og sótt um tímabundna stöðvun á innheimtu námslána.Það er í  þágu landsins alls að byggðir þess blómstri. Með uppbyggingu á landsbyggðinni, eflingu sveitarstjórnarstigsins og aukinni samkeppnishæfni landsins gagnvart útlöndum er grundvöllur lagður að því að hver einstaklingur fái að njóta sín án tillits til búsetu, enda lítur landsfundur á frelsi til búsetu sem einn af grundvallarþáttum sjálfstæðisstefnunnar.

Jafnrétti kostar ekkert.

  1. Sjálfstæðisflokkurinn sér jafnrétti sem eina af grunnstoðum sjálfstæðisstefnunnar. Í því er fólginn sá skilningur að meta eigi einstaklinginn á hans eigin forsendum. Því leggst Sjálfstæðisflokkurinn gegn öllum þeim aðgerðum sem hygla einum á kostnað annars.
  2. Mikilvægt er að allir taki þátt í þeirri uppbyggingu sem framundan er. Tilfinnanlega hefur skort á þátttöku kvenna í stjórnmálum og viðskiptalífi landsins. Þessu þarf að breyta. Sjálfstæðisflokkurinn þarf í öllu sínu starfi, hvort sem er innan flokks eða utan, að tryggja jöfn tækifæri óháð kyni.
  3. Landsfundur vill tryggja jafnan rétt milli allra einstaklinga í landinu. Allir skulu vera jafnir fyrir lögum. Sjálfstæðisflokkur telur sértækar aðgerðir til að auka jafnrétti helst til þess fallnar að auka misrétti milli einstaklinga.
  4. Laun eiga að endurspegla hæfni, ábyrgð, vinnuframlag og frammistöðu launþega. Það er óviðunandi að enn sé við lýði óútskýrður launamunur karla og kvenna. Á þessum vettvangi þurfa ríki og sveitarfélög að fara á undan með góðu fordæmi og tryggja að hvergi í hinu opinbera kerfi líðist óútskýrður launamunur kynjanna.
  5. Sjálfstæðisflokkurinn telur það grundvallaratriði að tryggja jafna stöðu og jöfn tækifæri kvenna og karla. Fæðingarorlofslögunum er meðal annars ætlað að ná þessu markmiði. Á þeim samdráttartímum sem framundan eru telur Sjálfstæðis­flokkurinn mikilvægt að tryggt verði að greiðslur úr fæðingarorlofssjóði verði nægjanlega háar til að tryggja að útivinnandi foreldrum sé fjárhagslega mögulegt að vera heima þann tíma sem þau eiga rétt á.  Sjálfstæðisflokkurinn leggur  áherslu á að dagvistunarúrræði standi til boða við lok fæðingarorlofs og hvetur sveitarfélög til að virkja einkaaðila í þeim efnum. Jafnframt verði haldið áfram líkt og mörg sveitafélög undir stjórn Sjálfstæðisflokksins gera að bjóða foreldrum heimgreiðslur sem vilja hafa barn heima við.

Foreldrajafnrétti

  1. Sjálfstæðisflokkurinn vill að barnalögum verði breytt með þeim hætti að foreldrajafnrétti verði tryggt. Nauðsynlegt er að dómarar fái heimild til að dæma foreldrum sameig­in­lega forsjá. Jafnframt þurfa foreldrar að eiga þess kost að geta samið svo að lögheimili barns verði hjá þeim báðum. Sjálfstæðis­flokkurinn telur að í lögum ætti sú meginregla að gilda við sameiginlega forsjá að kostnaður vegna umgengni skiptist jafnt á milli foreldra nema þau ákveði annað í samningi eða sýslumaður úrskurði annað. Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að sjálfvirk forsjá til sambúðaraðila eða maka falli niður end séu hagsmunir barnsins ávallt í fyrirrúmi.  Sjálfstæðisflokkurinn vill að karlmaður sem telur sig föður barns geti höfðað faðernismál þótt barnið sé feðrað. Forsjárlausir foreldrar fái aðgang að skriflegum upplýsingum um barn sitt frá stofnunum og sveitarfélögum. Sjálfstæðisflokkurinn vill að umgengnisdeilur verði hægt að reka fyrir dómstólum.
    Hagsmunir barnsins skuli ávallt vera í fyrirrúmi og þess gætt að rödd barnsins hafi vægi í forræðismálum.
  2. Sjálfstæðisflokkurinn telur afar brýnt að hraða endurskoðun barnalaga.
  3. Sjálfstæðisflokkurinn telur tímabært að gerð verði heildarendurskoðun á meðferð umgengnistálmana sem tekur m.a. til neyðarréttar foreldra, sönnunarbyrði, dagsekta, innsetningarákvæða og refsinga.

Málefni samkynhneigðra

  1. Sjálfstæðisflokkurinn vill að hjúskaparlögum verði breytt þannig að á Íslandi gildi einungis ein hjúskaparlög fyrir gagnkynhneigða og samkynhneigða. Áfram skal tryggt að trúfélög hafi sjálfdæmi um það hvers konar sambúðarform tveggja einstaklinga hljóti blessun innan vébanda þeirra

Vellíðan er besta forvörnin

  1. Samvera barna með fjölskyldunni er talin vera  besta forvörnin. Til að það sé mögulegt þarf að byggja innviði samfélagsins upp á fjölskylduvænan hátt. Sjálfstæðisflokkurinn vill stuðla að fjöl­skyldu­vænu samfélagi með því að foreldrum sé gert kleift að halda góðu jafnvægi á milli heimilis og vinnu ásamt því að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að gera slíkt hið sama.
  2. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að öflugt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf sé stundað um land allt. Mikilvægt er að halda áfram að efla frjáls félagasamtök sem að því starfi standa og hvetja þau til að reyna að ná til ennþá breiðari hóps en nú er. Ljóst er að íþróttir-, æskulýðs- og tómstundastarf hefur mikið forvarnargildi fyrir börn og ungmenni og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu í dag er full ástæða til að efla þetta forvarnarstarf enn frekar. Leggja þarf áherslu á að jafnræðis sé gætt þegar fjárveitingum hins opinbera er úthlutað. Ferðasjóður ÍSÍ er mikilvægur þáttur í því og tryggja verður tilveru hans. Sjálfstæðisflokkurinn hvetur sveitarfélög til að stuðla að enn frekari samfellu í skóla-, íþrótta-,  æskulýðs- og tómstundastarfi, fjölskyldum til hagsbóta.
  3. Forvarnir eiga að taka til sem flestra þátta í uppvexti barna og lífi fólks, stuðla að heilbrigði og jafnrétti. Vinna verður gegn fordómum og einelti og efla forvarnir gegn geðröskunarsjúkdómum. Heilbrigð sál í hraustum líkama er lykilatriði í þessum efnum. Sjálfstæðis­flokk­urinn vill tryggja framhaldsskólanemum aðgengi að sálfræði-og hjúkrunarráðgjöf til samræmis við grunnskólanema og minnir á mikilvægi þess að forvarnar­starf sé endurmetið reglulega.
  4. Forvarnir gegn vímuefnum  eru langtímaverkefni. Vímuefnavandinn kostar fjölda mannslífa á ári hverju. Halda þarf uppi virkri fræðslu og styðja við  samtök sem halda  úti öflugu forvarnastarfi.  
  5. Sjálfstæðisflokkurinn vill að hugað sé að öðrum úrræðum en fangelsun fyrir afbrotamenn undir lögaldri.

Velferðarmálefni.

  1. Sjálfstæðisflokkurinn vill búa vel að innflytjendum og sjá til þess að þeir njóti jafnra tækifæra á við aðra þjóðfélagsþegna og gera þeim þannig kleift að verða hluti að samfélaginu, bæði í félagslegu og lagalegu tilliti. Mikilvægt er að sjá til þess að innflytjendur verði ekki einangraður minnihluti samfé­lags­ins, en hægt er að fyrirbyggja slíkt með markvissum aðgerðum og þar leikur stefnumótun stjórn­valda, upplýs­ingar og fræðsla lykilhlutverk. Sjálfstæðisflokkurinn varar við ríkisstofnanavæðingu innflytjendamála því ljóst er að einkaaðilar hafa að miklu leyti tekið málefni innflytjenda upp á sína arma undanfarin ár og átt frumkvæði að margvíslegri þjónustu þeim til handa. Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja að útlendingum sé ekki mismunað á grundvelli tungumála- eða lærdómsörðugleika.
  2. Sjálfstæðisflokkurinn vill að fatlaðir búi við jöfn tækifæri á við aðra í þjóðfélaginu, bæði í félagslegu og laglegu tilliti. Þeim sé tryggt fullt aðgengi að almennri þjónustu og úrræðum. Það sé gert með markvissum aðgerðum.
  3. Mikilvægt er að sporna gegn heimilisofbeldi og kynbundnu ofbeldi. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á áframhaldandi stuðning við félagasamtök og stofnanir sem sinna þessum málaflokki.

Aðgerðir

  • Sjálfstæðisflokkurinn telur nauðsynlegt að útfæra varanlega lausn til að létta greiðslubyrði íbúðalána.
  • Sjálfstæðisflokkurinn vill halda áfram endurskoðun gjaldþrotalaganna.
  • Sjálfstæðisflokkurinn telur að auðvelda eigi fólki í fjárhagserfiðleikum að nýta séreignarsparnað sinn.
  • Sjálfstæðisflokkurinn telur lykilatriði að bæði kynin taki jafnan þátt í þeirri uppbyggingu sem framundan er en tilfinnanlega hefur skort á þátttöku kvenna í stjórnmálum og viðskiptalífi landsins.
  • Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja foreldrajafnrétti með breytingu á barnalögum.
  • Sjálfstæðisflokkurinn vill að hæfni, ábyrgð, vinnuframlag og frammistaða launþega endurspegli laun og telur óviðunandi að enn sé við lýði óútskýrður launamunur karla og kvenna.
  • Sjálfstæðisflokkurinn telur það grundvallaratriði til að tryggja jafna stöðu og jöfn tækifæri kvenna og karla .
  • Sjálfstæðisflokkurinn hvetur sveitarfélög til að stuðla að enn frekari samfellu í skóla-, íþrótta- og æskulýðs.starfi.
  • Sjálfstæðisflokkurinn vill að hjúskaparlögum  verði breytt.
  • Sjálfstæðisflokkurinn vill búa vel að innflytjendum og sjá til þess að þeir njóti jafnra tækifæra á við aðra þjóðfélagsþegna.
  • Sjálfstæðisflokkurinn vill að fatlaðir búi við jöfn tækifæri á við aðra í þjóðfélaginu, bæði í félagslegu og laglegu tilliti.
  • Sjálfstæðisflokkurinn vill standa vörð um húsaleigumarkaðinn.