Sjálfstæðisflokkurinn
Í brennidepli
Ályktanir landsfundar 2009
Ályktanir Landsfundar 2009

Ályktun um efnahags- og skattamál

  1. Markmið Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum eru fjölbreytt atvinnulíf, stöðugleiki, lágir skattar og frelsi í viðskiptum. Það er keppikefli Sjálfstæðisflokksins að efla í landinu víðsýna og frjálslynda framfarastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis, atvinnufrelsis og séreignar með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Þannig verður tryggt að einstaklingar fái möguleika til þess að njóta sín. Sjálf­stæðis­­flokkurinn er flokkur allra stétta og hefur forystu um að efla nýsköpun á frjálsum markaði og nýta sóknarfæri í atvinnulífinu með þátttöku allra þjóðfélagsþegna. Einungis þannig verður Íslend­ingum aftur skipað í fremstu röð meðal þjóða heims hvað lífskjör varðar.

Frelsi sem ábyrgð fylgir

  1. Allt frelsi kallar á aga og ábyrgð.  Starfsemi einstaklinga og fyrirtækja verður þannig að vera innan marka sem ríkisvaldið er ábyrgt fyrir.  Þessi mörk fela í sér lög, reglur og eftirlit, en umfram allt fela þau í sér að fylgt sé samræmdri stefnu í efnahagsmálum, einkum í fjármálum ríkisins og peningamálum.  Standa verður vörð um viðskiptafrelsi. Ríkisvaldið á að tryggja að menn virði lög og reglur og ógni ekki almannaheill. Við verðum að læra af reynslu fyrri tímabila og túlka ný viðhorf á hverjum tíma í ljósi þeirrar reynslu. Sjálfstæðisflokkurinn mun áfram vinna að hugsjónum um frelsi sem ábyrgð fylgir og setja hugmyndir um ábyrgð og farsæld í öndvegi, þar á meðal í hagstjórn.

Ábyrg afstaða

  1. Hrun viðskiptabankanna olli gríðarlegu tjóni og við þær erfiðu aðstæður hefur íslenska ríkið neyðst til að leita aðstoðar annarra þjóða og alþjóðastofnana. Þetta er gert í þeirri viðleitni að endurreisa fjármálakerfi landsins, standa vörð um velferðarkerfið og aðra innviði samfélagsins en einnig til að standa við skuldbindingar þjóðarinnar gagnvart öðrum ríkjum. Sjálfstæðisflokkurinn axlar hlutdeild sína í ábyrgð á þessum hamförum. Það mun flokkurinn gera best með því að leiða þá enduruppbyggingu sem óhjákvæmilega mun fara fram.
  2. Nú ríður yfir heiminn alvarlegasta kreppa sem um getur í marga áratugi. Landsfundur geldur varhug við málflutningi þeirra sem vilja kenna frjálsum viðskiptum um þá fjármálakreppu sem heimurinn glímir við og varar við þeim auknu ríkisafskiptum af atvinnulífinu sem vinstri flokkarnir vinna nú að.
  3. Ástæða þess að vandi íslenska bankakerfisins er meiri en víða annars staðar var vanmat viðskipta­bankanna á áhættu í starfsemi sinni. Jafnframt nýttu stjórnvöld sér ekki nógu snemma þau úrræði sem þau hafa til þess að grípa inn í. Rannsaka þarf ástæður bankahrunsins á Íslandi, einkum hvort einstaklingar og fyrirtæki hafi sýnt af sér saknæma háttsemi í aðdraganda og kjölfar þess. Í slíkri rannsókn má ekkert undan skilja og mikilvægt er að allt komi upp á borðið. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fagnar þeim skrefum sem þegar hafa verið tekin hvað þetta varðar. Til að tryggja trúverðugleika og hlutleysi verði færustu sérfræðingar fengnir til þess að rannsaka ástæðu bankahrunsins. Þótt vandi íslenskra fjármálafyrirtækja sé ærinn þá er laga­umhverfi þeirra að stofni til eins og annars staðar á evrópska efnahagssvæðinu og víðar. Mikilvægt er að lagaumhverfið verði endurskoðaðar í ljósi reynslunnar.  Eftirlit með fjármálamörkuðum skal efla að mun.

Ábyrgur flokkur aðlagast hratt

  1. Ljóst er að hið opinbera þarf að draga stórlega úr útgjöldum og fjárfestingum á næstu misserum til að halda skuldum og hallarekstri hins opinbera í lágmarki. Þannig liggur fyrir að ef uppfylla á skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um ríkisfjármál þarf að hag­ræða um tugi milljarða í rekstri hins opinbera á næstu árum. Skilgreina ber þá grunnþjónustu sem ríkið á að sinna. Niðurskurðurinn mun óhjákvæmi­lega taka til allra þátta hins opinbera og brýnt er að forgangsröðun í útgjöldum þess sé með þeim hætti að hann bitni síst á mennta- og velferðarkerfinu.
  2. Sjálfstæðisflokkurinn mun skapa skilyrði til að allar vinnufúsar hendur fái viðnám krafta sinna. Besta leiðin til að draga úr atvinnuleysi er gott rekstrarumhverfi fyrir arðbæran atvinnurekstur um allt land sem hvetur til stofnunar fyrirtækja. Sérstaklega þarf að hindra atvinnuleysi ungs fólks.

Næstu skref eru mikilvæg og aðkallandi

  1. Peningamálastefnuna verður að endurskoða. Ljóst er að krónan verður lögeyrir landsins enn um sinn, sama hvað verður fyrir valinu síðar. Afar mikilvægt er að agi sé á hagstjórn; ríkisútgjöldum sé haldið í lágmarki og að samræmi sé milli ríkisfjármála og peningamálastefn­unnar. Þannig er æskilegt að stjórnvöld einsetji sér að uppfylla skilyrði eins og fram koma í Maastricht-sáttmálanum Ákvarðanir um framtíðarskipan gjaldmiðilsmála verður hins vegar að taka af mikilli yfirvegun eftir gaumgæfi­lega skoðun á öllum möguleikum. Lagt er til að vinna við endurskoðun á gjaldmiðli landsins hefjist strax og ljúki á árinu.
  2. Helsta hlutverk hins opinbera er að móta skýrar og almennar leikreglur og laða þannig fram frum­kvæði og kraft. Heppilegast er að lög og reglur séu mótaðar í samvinnu við atvinnulífið og aðra hagsmunaaðila og frumkvæði komi m.a. frá þeim um að setja sér starfsreglur og viðmið sem hæfa breyttum tímum.
  3. Fall bankanna er afleiðing af afglöpum einstaklinga, en er ekki áfellisdómur yfir frjálsum markaði. Lands­fundur hvetur til þess að sem fyrst verði hafist handa við að koma eignarhaldi á ríkisbönkunum í dreifða einkaeign. Mikilvægt er að öll þau fyrirtæki sem lenda í eigu ríkisins, vegna erfiðleika í íslenska hagkerfinu, verði sem fyrst komið í einstaklingseigu í gegnum opið og gagnsættferli, sem er hafið yfir alla gagnrýni. Í stað eignaumsýslufélags ríkisins verði stofnað eignasölufélag í sem dreifðasti eign í samstarfi við atvinnulífið, lífeyrissjóði og fleiri með það að markmiði að selja eignirnar og hámarka virði þeirra. Um leið væri stuðlað að nauðsynlegri endurreisn virks hluta­bréfa­markaðar.
  4. Við skattleggjum okkur ekki út úr kreppunni. Landsfundur leggst alfarið gegn þeim hugmyndum vinstri stjórnarinnar sem fram hafa komið um að hækka beri skatta umfram það sem nú þegar hefur verið ákveðið og harmar að þurft hafi að koma til þeirra skatta­hækkana sem lögfestar hafa verið á síðustu misserum. Sjálfstæðisflokkurinn mun beita sér af fullum þunga gegn endurupptöku eignaskatts og hátekjuskatts. Eignaskattur er í grundvallaratriðum ósanngjarn og kemur einkum illa við eldra fólk. Frekari hækkun skatta væri tilræði við kaup­mátt almennings og myndi gera honum erfiðara að komast í gegnum efnahags­þrengingarnar sem nú eru hafnar. Landsfundur hvetur sveitarfélög sérstaklega til þess að standa gegn hækkun skatta og sýna um leið meira aðhald í rekstri sínum en verið hefur undanfarin ár.

Aðgerðir

  • Að skapa skilyrði til varanlegs hagvaxtar, m.a. með því að tryggja áfram sjálfbæra og hagkvæma nýtingu á náttúruauðlindum landsins.
  • Að tryggja góð rekstrarskilyrði fyrirtækja með því byggja upp atvinnulífið með skilvirkum og almennum reglum.
  • Að styrkja samkeppnisstöðu landsins um fjárfestingar í atvinnulífinu. Gjaldeyrishöft þarf að afnema sem fyrst í þessum tilgangi.
  • Að fella niður tolla og lækka enn frekar vörugjöld.
  • Að einfalda skattkerfið og leggja af skatta og gjöld sem skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja og atvinnugreina. Nauðsynlegt er að endurskoða lög um ýmsa smáskatta og gjöld sem hugsanlega áttu rétt á sér áður en eru nú tímaskekkja.
  • Að leggja áfram áherslu á að flytja verkefni frá ríkinu til að draga úr umsvifum hins opinbera og auka þar með samkeppni á markaðnum.
  • Að starfs- og lagaumhverfi stofnana og fyrirtækja verði breytt til samræmis við umhverfi einkageirans.

 

Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica