Sjálfstæðisflokkurinn
Í brennidepli
Ályktanir landsfundar 2009
Ályktanir Landsfundar 2009

Ályktun um vísinda- og nýsköpunarmál

 

Endurreisn efnahags- og atvinnulífs með öflugri nýsköpun í  í íslensku samfélagi

  1. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins telur öfluga nýsköpun eina af megin­forsendum endurreisnar íslensks efnahags- og atvinnulífs. Landsfundur leggur áherslu á arðbæra ný­sköpun í landinu með því að hlúa að undirstöðum hennar, verkþekkingu, rannsóknum og tækni­þróun. Stjórnvöld eru hvött til að stórauka vægi rannsókna- og tækniþróunar í íslensku atvinnulífi og samræma aðgerðir hins opinbera og einkaaðila í nýsköpun á öllum sviðum þjóðlífsins.

Nýsköpun og starfsumhverfi frumkvöðla og fyrirtækja

  1. Arðbær nýsköpun frumkvöðla og fyrirtækja er sá grundvöllur hagvaxtar sem Íslendingar geta lagt traust sitt á til næstu áratuga. Ein af megin áherslum stjórnvalda á að vera bætt starfsumhverfi frumkvöðla og fyrirtækja sem stunda nýsköpun á Íslandi. Þar ber sérstaklega að líta til sprotafyrirtækja. Starfsumhverfi fyrirtækja hér á landi þarf að vera hvetjandi fyrir alla sem vilja byggja upp fyrirtæki og skapa störf.
  2. Landsfundur telur mikilvægt að:
    • Auka fjárfestingar innlendra og erlendra aðila í rannsóknum og nýsköpun á Íslandi.
    • Hvetja einstaklinga og fyrirtæki til nýsköpunar og tækniþróunar með einfaldri skatta- og lagaumgjörð.
    • Styðja við frumkvæði einstaklinga til uppbyggingar sprotafyrirtækja með reynslu annarra þjóða að leiðarljósi.
    • Opinberir aðilar útvisti verkefnum til að efla nýsköpun og tækniþróun í íslensku atvinnulífi.
    • Leggja áherslu á aðgerðir sem fjölga nýjum fyrirtækjum og efla þannig heilbrigðasamkeppni og auka verðmætasköpun.
    • Leggja áherslu á bættar gagnatengingar við landið til að stuðla að uppbyggingu gagnavera og vísindagarða um land allt.

Stoðkerfi rannsókna og nýsköpunar

  1. Stór hluti opinberra framlaga til rannsókna og nýsköpunar er bundinn í ríkisreknum rann­sókna­stofn­unum. Öflugir rannsókna- og nýsköpunarsjóðir eru enn undir stjórn einstakra atvinnu­vega­ráðu­neyta. Þessu fé þarf að veita í auknum mæli tilöflugs samkeppnissjóðs á sviði nýsköpunar sem beini sjónum sínum sérstaklega að frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum.
    Landsfundur hvetur til þess að komið verði á fót sjóði sem hafi það hlutverk að veita þolinmótt fjármagn til nýsköpunar. Leitast verður við að bjóða allar hugmyndir velkomnar þannig að fjölbreytileiki í atvinnulífinu aukist. Kraftur og frumkvæði einstaklingsins fái þannig að njóta sín óháð menntun. Vilji einstaklingsins til nýsköpunar er allt sem þarf.
  2. Landsfundur telur mikilvægt að:
    • Skerpa áherslur opinberra samkeppnissjóða sem styðja rannsóknir, tækniþróun og nýsköpun og auka þannig skilvirkni þeirra.
    • Auka hlutfall opinberra samkeppnissjóða sem styðja rannsóknir, tækniþróun og nýsköpun þannig að það verði a.m.k. fjórðungur af heildarfjárveitingu hins opinbera til málaflokksins.
    • Skapa stuðningsumhverfi sprotafyrirtækja sem byggi á samkeppni fyrirtækjanna sjálfra í gegnum öflugan samkeppnissjóð þar sem einkaaðilar fjárfesta í nýsköpun á móti hinu opinbera, meðal annars með „krónu fyrir krónu“ fyrirkomulagi.
    • Fela einkaaðilum í auknum mæli að sinna stuðningi við nýsköpun og sjá um opinber fjárútlát til sprotafyrirtækja, sem fari fram með samkeppni- eða útboðsfyrirkomulagi.
    • Fela Vísinda- og tækniráði umsjón opinberra samkeppnissjóða sem styrkja rannsóknir og nýsköpun og tryggja að pólitísk afskipti einstakra ráðuneyta ráði ekki úthlutunum sjóðanna í stað sam­keppnis­­forsendna.
    • Stytta boðleiðir í málefnum nýsköpunar með sameiningu atvinnuvegaráðuneyta.
    • Auka  þátttöku íslenskra frumkvöðla í samkeppni- og nýsköpunaráætlun ESB.
    • Gögn og upplýsingar í vörslu ríkis og sveitarfélaga og stofnana þeirra verði opin og aðgengileg  til rannsókna og nýsköpunar eins og unnt er, með þeim takmörkunum sem persónuvernd og almannaheill krefjast.

 


 

Leita á vefnum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica