Umhverfis- og skipulagsmál
Stefnt skal að því að Ísafjarðarbær komist í forystusveit sveitarfélaga á Íslandi í umhverfismálum. Stefna Staðardagskrár 21 um sjálfbært samfélag verði höfð að leiðarljósi. Vitund um mikilvægi þess að vernda náttúru og umhverfi fer sífellt vaxandi. Heilnæmt vatn og loft og fjölbreytni náttúrunnar eru gæði sem allir bera ábyrgð á að nýtt séu með sjálfbærum hætti. Með því að umgangast umhverfið á ábyrgan hátt er stuðlað að betri lífsskilyrðum fyrir komandi kynslóðir.
Bæjarstjórn lauk við gerð aðalskipulags 2008-2020 á kjörtímabilinu þar sem lýst er fjölbreyttum tækifærum varðandi framtíðaruppbyggingu sveitarfélagsins. Vinnubrögð við gerð þess voru til fyrirmyndar og sjálfstæðismenn leggja áherslu á að fylgja þeirri stefnu sem þar er mótuð. Mikilvægt er að festa og framtíðarsýn sé höfð í heiðri í skipulagsmálum. Lóðaúrval sé fjölbreytt og gott þannig að skipulagið skapi ný tækifæri og geti eflt það atvinnulíf sem er þegar til staðar.
Mótuð verði stefna til framtíðar varðandi varðveislu og endurbyggingu gamalla húsa og götumynda í öllum byggðarkjörnum Ísafjarðarbæjar. Hafist verður handa við að gera upp götur í gömlum hverfum þannig að hús og götur myndi eina heild, svo sem með hellulögn og gamaldags ljósastaurum. Krefja þarf ríkisvaldið um fjármagn til að ljúka uppbyggingu varna undir Kubbanum og Gleiðarhjalla í samræmi við hættumat og framkvæmdaáætlun bæjarstjórnar.
Sjálfstæðismenn vilja vernda umhverfi bæjarfélagins og tryggja að íbúarnir og gestir þeirra geti notið stórbrotinnar náttúru sveitarfélagsins sem víðast en þó með hagsmuni náttúruverndar að leiðarljósi. Við viljum leggja metnað okkar í að allir hlutar bæjarins verði til fyrirmyndar í umhverfis- og hreinlætismálum. Við viljum styrkja og efla útivistarsvæði, tryggja hreinlæti og góða umhirðu opinna svæða með markvissu ræktunarstarfi. Við viljum heilsteypt samgöngukerfi gatna, göngu-, hjólreiða- og reiðstíga, eins og góður grunnur er lagður að í nýsamþykktu aðalskipulagi.
- Áhersla verður lögð á framtíðarlausn í sorpmálum í Ísafjarðarbæ og lagt kapp á hagkvæma og umhverfisvæna hirðingu og förgun sorps.
- Við viljum endurskipuleggja gáma- og urðunarsvæði þannig að þau verði til fyrirmyndar.
- Kannaður verði möguleiki á nýjum urðunarstað. Stefnt skal að lokun sorpurðunarsvæðisins við Klofning og gengið frá því á snyrtilegan hátt.
- Átak verði gert í flokkun sorps með öflugri upplýsingagjöf og aðgengilegum leiðbeiningum.
- Forsenda endurnýtingar og endurvinnslu er vönduð flokkun úrgangs. Því verður grenndargámum fjölgað og hvatt til heimajarðgerðar.
- Gjaldskrá vegna sorphirðu verði endurskoðuð með það að markmiði að íbúar geti lækkað sorphirðugjöld sín með flokkun.
- Kanna skal möguleika á samstarfi um nytjamarkað þar sem munir með óskert notagildi eru endurnýttir í stað förgunar, sbr. Góða hirðinn á höfuðborgarsvæðinu.
- Árlega skulu veittar viðurkenningar fyrir árangur í umhverfismálum fyrirtækja í sveitarfélaginu, t.d. í flokkun, sorpminnkun eða hreinsun.
- Skipulag strandsvæða, sem í dag nær aðeins til 115 m frá stórstraumsfjöru, falli undir ákvörðunarvald sveitarfélaga.
Markvisst skal unnið að því að bæta ásýnd Ísafjarðarbæjar og skapa hreint og snyrtilegt umhverfi. Þar á bæjarfélagið að ganga á undan með góðu fordæmi og sjá til þess að húseignir og lóðir á þess vegum séu ávallt snyrtilegar. Jafnframt skal hvetja íbúa og fyrirtæki til að halda sínu nánasta umhverfi snyrtilegu og gæta þess að gott aðgengi sé að svæðum þar sem losa má garðaúrgang og úrgang sem fellur til vegna viðhalds húsa og annarra mannvirkja.
- Áfram verði unnið að því að bæta ástand gatna og gangstétta í öllum byggðarkjörnum Ísafjarðarbæjar. Endurnýjun holræsa- og vatnsveitukerfisins verði fram haldið.
- Opin svæði skulu vera snyrtileg og aðlaðandi. Íbúar verði hvattir til að taka ákveðin opin svæði í fóstur í samstarfi við bæjarfélagið.
- Gerð verði nákvæm úttekt á opnum og grænum svæðum í bæjarlandinu og þar skilgreind framtíðarnotkun þeirra og varðveislugildi.
- Aðstaða til útivistar verði bætt enn frekar með lagningu nýrra göngustíga.
- Áframhaldandi átak verði í umhverfismálum á atvinnusvæðum í samvinnu við atvinnurekendur.
- Komið verði til móts við þá sem gera upp gömul hús með styrk sem nemur hluta af fasteignagjöldum.
- Við viljum halda íbúaþing um uppbyggingu á svokölluðuTorfnesrifi, smábátahöfn og varnargörðum.

Reykjavik