Skóla- og fjölskyldumál
Skóla- og fjölskyldumál
Eitt mikilvægasta verkefni okkar er að gæta að velferð barnanna. Þjónusta við þarfir þeirra, jafnt almennar sem sérstakar, ásamt ráðgjöf og fræðslu til foreldra eru atriði sem sjálfstæðismenn leggja áherslu á. Forvarnir eru mikilvægar og þar er þátttaka í íþróttum og félagasamtökum vænlegust til árangurs. Hvetja þarf einstaklinga til ábyrgðar á eigin lífi og auðvelda þeim að taka virkan þátt í samfélaginu. Kjarni sjálfstæðistefnunnar er að virkja þann kraft sem í fólkinu býr.
- Við viljum að grunnskólar Ísafjarðarbæjar verði til fyrirmyndar á landsvísu.
- Sjálfstæðismenn vilja að markmið Lýðheilsustöðvar verði höfð að leiðarljósi þegar horft er til mataræðis og hreyfingar grunnskólabarna.
- Forvarnir verði efldar með tilliti til almennrar velferðar barna undir forystu Skóla- og fjölskylduskrifstofu í samvinnu við foreldra, félagasamtök og skólana.
- Sjálfstæðismenn vilja tryggja frjálst val foreldra og barna um grunnskóla.
- Hver skóli skilgreini sérstöðu sína og áherslur í starfi með nemendum.
- Áfram verður unnið að uppbyggingu skólalóða og leikvalla.
- Unnið verði eftir Uppbyggingarstefnu í grunnskólum.
- Gjaldfrjálst verði fyrir grunnskólabörn í strætó.
