Ísafjarðarbær
Málefnin
Samgöngumál

Samgöngumál

Sjálfstæðismenn leggja áherslu á nútímalegar samgöngur innan Vestfjarða. Í þessu samhengi verður að tryggja öruggar heilsárssamgöngur við suðursvæði Vestfjarða, m.a. með jarðgöngum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar í samræmi við stefnumörkun Fjórðungsþings Vestfirðinga. Áfram munum við berjast fyrir jöfnun flutningskostnaðar til að bæta samkeppnisstöðu atvinnulífs og íbúa. Stjórnvöldum ber að byggja upp öflugt fjarskiptakerfi á Vestfjörðum sem bætir stöðu atvinnulífs og jafnar aðstöðu íbúa. 

  • Við viljum að snjómokstur verði aftur tryggður sjö daga vikunnar á þjóðvegum.
  • Við viljum að nýju fá heimild fyrir millilandaflugi minni véla frá Ísafjarðarflugvelli, einkum Grænlandsflugi.
  • Við viljum hringtengingar ljósleiðara og rafmagns.
  • Við teljum mikilvægt að við mannvirkjagerð í samgöngumálum sé litið 25-30 ár fram í tímann.
  • Sjálfstæðismenn vilja heildstæða uppbyggingu gatnakerfis, göngu-, reiðhjóla- og reiðstíga með áherslu á umhverfisvænar samgöngur og útivist.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica