Ísafjarðarbær
Málefnin
Málefni fatlaðra

Málefni fatlaðra

Allir eiga að geta valið sér búsetuform í samræmi við óskir sínar og þarfir og þeim skal tryggð þjónusta og stuðningur til sjálfstæðis og þátttöku í samfélaginu. Um næstu áramót flytjast málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Um er að ræða mjög stóran málaflokk og mikilvægt að vel takist til þannig að sú kunnátta og reynsla sem er til staðar nýtist til eflingar þjónustu við fatlaða. 

  • Strax að loknum kosningum verður að ganga skipulega til verks í stjórnsýslunni til að tryggja hnökralausa yfirfærslu málefna fatlaðra, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega.
  • Við viljum vinna að úrbótum í ferlimálum fatlaðra á grundvelli heildarúttektar á mannvirkjum og umhverfi bæjarins.
  • Við viljum sjá til þess að sem minnst röskun verði við fyrirhugaðar breytingar, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica