Málefni eldri borgara
Sjálfstæðismenn ætla að búa vel að eldri borgurum Ísafjarðarbæjar og tryggja að hag þeirra verði sem best borgið. Sjálfstæðismenn vinna að því að byggt verði hjúkrunarheimili í tengslum við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og leggja allt kapp á að framkvæmdir hefjist á næstu misserum.
Áframhaldandi þróun í heimaþjónustu aldraðra og samþætting heimaþjónustu og heimahjúkrunar er í samræmi við stefnu sem nú vex fiskur um hrygg í íslensku þjóðfélagi. Gera á fólki kleift að búa sem allra lengst heima með sjálfstæði einstaklingsins að leiðarljósi. Nauðsynlegt er að hafa lausnir fyrir þá sem þurfa meiri þjónustu en hægt er að veita á heimili fólks. Því er bygging hjúkrunarheimilis nauðsynlegur liður í bættum aðbúnaði eldri borgara. Tómstundastarf aldraðra er liður í betra samfélagi. Því er mjög mikilvægt að það sé eflt með öllum tiltækum ráðum.
- Eldri borgarar skulu hafa val um búsetu um leið og þeim er tryggð einstaklingsbundin þjónusta.
- Sjálfstæðismenn leggja allt kapp á að nýtt hjúkrunarheimili verði tekið í notkun á komandi kjörtímabili.
- Við munum áfram veita 67 ára og eldri afslátt af fasteignasköttum.
- Við munum áfram tryggja öfluga heimaþjónustu við aldraða.
- Áfram verður stutt við metnaðarfullar fyrirætlanir um dagvist aldraðra.
- Við munum styðja við áframhaldandi uppbyggingu félagsstarfs aldraðra.
- Við munum halda fast við þá stefnu að taka við verkefnum frá ríkinu svo ákvarðanir um þjónustu verði teknar sem næst þeim sem hennar eiga að njóta.
- Með færslu málaflokks eldri borgara til sveitarfélagsins má ná fram samlegðaráhrifum og um leið efla þjónustuna.
- Stuðla þarf að aukinni fjölbreytni í búsetukostum fyrir eldri borgara í samstarfi við verktaka.

Reykjavik