Jafnréttismál
Jafnréttismál
Sjálfstæðismenn leggja kapp á innleiðingu Evrópusáttmálans um jafnrétti. Með því að vinna markvisst eftir þeim línum sem þar eru lagðar verður hægt að auka fagmennsku í stefnumótun og stjórnsýslu um leið og jafnrétti á öllum sviðum verður styrkt.
- Tryggja þarf jafnræði í launum kynjanna hjá Ísafjarðarbæ – sömu laun fyrir sömu vinnu.
- Við viljum að fólk af báðum kynjum og í öllum þjóðfélagshópum eigi jafnan aðgang að því sem í boði er í sveitarfélaginu, svo sem í tómstundum og íþróttastarfi.
- Öll stefnumótun þarf að taka mið af því að einstaklingar gjaldi ekki fyrir kynferði sitt eða uppruna. Þvert á móti verði hugað að því að greiða aðgengi þeirra sem hallað hefur á.
- Sjálfstæðismenn leggja áherslu á jafnt hlutfall karla og kvenna í stjórnum, nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
