Ísafjarðarbær
Málefnin
Íþróttir og tómstundir

Íþróttir og tómstundir

Meginmarkmið í íþróttamálum er að skapa aðstæður og ýta undir verkefni sem hvetja fjölskyldur og einstaklinga til hollrar hreyfingar og tómstunda. Nýta þarf einstaka náttúru svæðisins til útivistar. Áhersla er lögð á að kynna þá þjónustu og aðstöðu sem í boði er og hvetja til þátttöku, m.a. vegna forvarnargildis íþrótta. Við viljum skapa framtíðarsýn í uppbyggingu íþróttamannvirkja og íþróttastarfs þar sem horft er til alls svæðisins þvert á sveitarfélagamörk í nánu samstarfi við Héraðssamband Vestfirðinga (HSV). 

  • Áfram verði unnið að uppbyggingu íþróttastarfs undir forystu HSV og lögð áhersla á endurnýjun samstarfssamnings bæjarins við sambandið.
  • Fram fari endurskoðun á íþrótta- og tómstundastarfi yngstu bekkja grunnskólans undir forystu HSV með það að markmiði að auðvelda börnum og foreldrum þátttöku.
  • Við leggjum áherslu á áframhaldandi uppbyggingu á aðstöðu til íþróttaiðkana.
  • Áfram verði öflug starfsemi í öllum félagsmiðstöðvum bæjarfélagsins.
  • Við viljum auka samstarf við eldri borgara með það að markmiði að efla íþrótta- og tómstundastarf á þeirra vegum.
  • Við viljum efna til málþings í samvinnu við HSV um framtíðarsýn í íþróttamálum.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica