Atvinnu- og menningarmál
Sjávarútvegur, landbúnaður og iðnaður eru undirstöðuatvinnuvegir í sveitarfélaginu okkar. Við viljum standa vörð um þessar undirstöður og styrkja þær í hvívetna. Á liðnum árum hafa þessar atvinnugreinar unnið að þróun nýjunga á borð við sjókvía-, skelfisk- og seiðaeldi ásamt ýmsum tæknivæddum lausnum í fiskvinnslu og landbúnaði. Iðnaður í Ísafjarðarbæ snýst að miklu leyti um þjónustu við sjávarútveginn, en vegna óvissu í sjávarútvegi halda þau fyrirtæki að sér höndum þannig að stórlega hefur dregið úr eftirspurn eftir sérþekkingu iðnaðar- og tæknimenntaðs fólks. Þessari óvissu verður að eyða. Mikilvægt er því að sú nefnd sem vinnur að endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins ljúki störfum sem fyrst og nýtt skeið uppbyggingar og nýsköpunar hefjist. Ferðaþjónusta er í örum vexti og mörg ónýtt tækifæri á því sviði. Sveitarfélagið á að tryggja góðan aðbúnað allra atvinnugreina samhliða því að sinna hagsmunagæslu gagnvart ríkisvaldinu.
Sjálfstæðismenn hafa lagt áherslu á að lausnin út úr efnahagsþrengingunum er að auka verðmætasköpun í samfélaginu og það verður aðeins gert með því að efla atvinnulíf og nýta kraft og getu einstaklinga. Miklar skattaálögur leiða til hnignunar og samdráttar. Sjálfstæðismenn í Ísafjarðarbæ leggja áherslu á stuðning við þróun nýrra atvinnutækifæra. Með því að leiða saman hagsmunaaðila, s.s. á vettvangi Vaxtarsamnings Vestfjarða og Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, er lagður grunnur að þróunarstarfi í atvinnulífi og sköpunarmáttur einstaklinga virkjaður.
Sjálfstæðismenn leggja mikla áherslu á aðgerðir til að auka afhendingaröryggi raforku á Vestfjörðum. Mikilvægt er að stjórnvöld kanni allar leiðir í þessu til hlítar. Þá teljum við jöfnun raforku- og hitunarkosnaðar vera grundvallarréttindi einstaklinga, sveitarfélaga og atvinnulífs.
Mennta- og rannsóknaumhverfi í Ísafjarðarbæ er í stöðugri uppbyggingu. Þróunarsetur Vestfjarða hefur verið mikilvægur liður í uppbyggingunni og er Háskólasetur Vestfjarða sprottið upp úr þeim jarðvegi. Sjálfstæðismenn hafa leitt þessa uppbyggingu og munu áfram vinna að því að Ísafjarðarbær þróist sem öflugur þekkingar- og rannsóknabær. Umfangsmikil þekking og reynsla í sjávarútvegi er óumdeild sérstaða vestfirsks samfélags. Sú sérstaða nýtist við nýsköpun og þegar leitað er leiða til að auka verðmæti sjávarfangs.
- Þrýsta þarf á ríkisvaldið um að auka fé og stuðning við rannsóknir í fiskeldi.
- Við viljum áfram leita leiða til að efla samstarf og þjónustu við sveitarfélög og atvinnulíf á Grænlandi.
- Áfram verði kallað eftir aðgerðum af hálfu ríkisvaldsins til að bæta stöðu framleiðslu- og iðnfyrirtækja varðandi lækkun flutningskostnaðar.
- Unnin verði ný stefnumótun í atvinnumálum fyrir tímabilið 2010-2015. Um leið verði gerð greining á stefnumótun 2005-2010 í ljósi þróunar í atvinnumálum á tímabilinu.
- Jafnan verði nægilegt framboð af lóðum undir atvinnurekstur á sem flestum sviðum.
- Áfram verði unnið að uppbyggingu Þróunarseturs og Háskólaseturs Vestfjarða og staðinn vörður um þá mikilvægu starfsemi sem þar fer fram.
- Leggja þarf áherslu á sérstöðu Vestfjarða í uppbyggingu í ferðaþjónustu.
- Markvisst verði unnið að markaðssetningu Ísafjarðarbæjar sem spennandi áfangastaðar fyrir ferðafólk.
- Áfram verði unnið að markaðssetningu hafna Ísafjarðarbæjar. Kappkostað verði að umhverfi og ásýnd hafna sé til fyrirmyndar.
- Við viljum styðja við stofnun Sjósportmiðstöðvar Íslands á Ísafirði enda svæðið vel til þess fallið frá náttúrunnar hendi.
- Farið verði í markvissa markaðsetningu Sjósportmiðstöðvar undir merkjum Hafna Ísafjarðarbæjar, líkt og gert hefur verið í tengslum við skemmtiferðaskipin.
- Gerð verði hafnaraðstaða fyrir skemmtibáta og skútur inni á Pollinum.
- Komið verði upp aðstöðu í landi þar sem hægt er að geyma skemmtibáta yfir vetrarmánuðina og sem mögulega mætti nýta yfir sumarið fyrir bifreiðar ferðamanna, t.d. þeirra sem fara á Strandir.
- Tjaldsvæði skulu vera vel skipulögð og snyrtileg og þjónustan eins og best verður á kosið. Komið skal til móts við ólíkar þarfir ferðamanna með tjöld, tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla.
- Við viljum efla ferðaþjónustu yfir vetrarmánuðina með því að tengja hana fjölbreyttu menningarlífi, sem er í boði á þeim árstíma, sem og útivist og náttúru.
- Við viljum aðstoða listamenn og listasamtök við að koma list sinni á framfæri enda felast verulegir möguleikar í því að gera menningu heimamanna sýnilegri ferðamönnum árið um kring.
- Við verðum áfram öflugur bakhjarl menningarlífs í Ísafjarðarbæ.
- Við viljum styðja við og samræma kynningu menningar- og fjölskylduhátíða á borð við Act Alone, Við Djúpið, Aldrei fór ég suður, Dýrafjarðardaga, Sæluhelgi á Suðureyri, Ólafstúnshátíðina, Stóra Púkamótið, Mýrarboltann, Skíðavikuna og Veturnætur.
- Merkingar verði bættar enn frekar t.d. með götuskiltum þar sem merktir eru inn áhugaverðir staðir.

Reykjavik