Sjálfstæðismenn ætla að búa vel að eldri borgurum Ísafjarðarbæjar og tryggja að hag þeirra verði sem best borgið.
Allir eiga að geta valið sér búsetuform í samræmi við óskir sínar og þarfir og þeim skal tryggð þjónusta og stuðningur til sjálfstæðis og þátttöku í samfélaginu.
Eitt mikilvægasta verkefni okkar er að gæta að velferð barnanna. Þjónusta við þarfir þeirra, jafnt almennar sem sérstakar, ásamt ráðgjöf og fræðslu til foreldra eru atriði sem sjálfstæðismenn leggja áherslu á.
Meginmarkmið í íþróttamálum er að skapa aðstæður og ýta undir verkefni sem hvetja fjölskyldur og einstaklinga til hollrar hreyfingar og tómstunda.
Stefnt skal að því að Ísafjarðarbær komist í forystusveit sveitarfélaga á Íslandi í umhverfismálum.
Sjávarútvegur, landbúnaður og iðnaður eru undirstöðuatvinnuvegir í sveitarfélaginu okkar. Við viljum standa vörð um þessar undirstöður og styrkja þær í hvívetna.