Viðtöl
Guðný Stefanía Stefánsdóttir
Íþróttakennari og bæjarfulltrúi
Frambjóðendur D-lista sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ svöruðu eftirfarandi spurningum skýrt og skilmerkilega þegar eftir því var leitað.
- Uppruni?
Ég er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, dóttir hjónanna Stefáns Runólfssonar fyrrverandi framkvæmdastjóra og Helgu Víglundsdóttur húsmóður. Ég á tvö systkini. - Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir stór?
Ég ætlaði að verða sögu- og landafræðikennari, eins og það hét þá, þegar ég var í grunnskóla. Þegar leið á menntaskóla langaði mig að fara í Lögregluskólann eða Kennaraháskólann á Laugarvatni og komst inn á báðum stöðum sumarið 1999. Ég valdi Laugarvatn og sé ekki eftir þeirri ákvörðun því annars væri ég væntanlega ekki hér. - Hve lengi hefurðu búið í Ísafjarðarbæ og af hverju?
Hér hef ég búið síðan 2002 eftir að ég kláraði námið mitt. Maðurinn minn vildi koma á heimaslóðirnar sínar og ég sló til og er mjög ánægð með það. - Helstu kostir þínir og gallar?
Alltaf erfitt að hæla sjálfum sér en ég tel að ég sé vinnusöm og skipulögð en get stundum verið óþolinmóð og fljótfær. - Fjölskylduhagir og áhugamál?
Ég er gift Jóni Hálfdáni Péturssyni íþróttafræðingi og við eigum tvo syni, Stefán Frey og Pétur Þór. Fjölskyldan er stærsta áhugamálið mitt og við erum mjög dugleg að ferðast og vera saman. Íþróttir og allt sem tengist þeim er stór þáttur í mínu lífi - svo er ég mikil prjónakona og verkefnin þar eru næg. - Hvers vegna pólitík?
Ég vil láta gott af mér leiða í sveitarfélaginu mínu og ég tel að kraftar mínir hafi nýst til góðra verka á þessu kjörtímabili. Þetta er krefjandi og spennandi vettvangur sem hefur styrkt mig sem einstakling. - Hvaða bæjarmál brenna heitast á þér?
Íþrótta- og tómstundamál, fræðslumál og umhverfismál eru mín helstu hugðarefni í bæjarpólitíkinni. - Hvers vegna Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórn?
Undanfarin ár hefur verið styrk stjórn hér í Ísafjarðarbæ undir forystu D-listans. Við höfum sýnt það og sannað að okkur er treystandi. Þannig viljum við hafa það áfram. - Stutt skilaboð til kjósenda:
Hugsum til framtíðar og veljum gott og traust fólk til forystu!

Reykjavik