Ísafjarðarbær
Greinar
  • eirikur

Framtíðin er okkar

Eiríkur Finnur Greipsson

Nú er senn á enda stutt en snörp kosningabarátta fyrir bæjar- og sveitarstjórnarkosningar kjörtímabilið 2010 til 2014. Frambjóðendur leggja nú stefnumál sín og verk í dóm kjósenda. Við á framboðslista sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ höfum leitast við að vera hógvær og málefnaleg í okkar málflutningi og baráttu. Við höfum farið hús úr húsi, haldið fjölda funda og heimsótt fjölda vinnustaða. Vissulega hefur ekki verið unnt að ná til allra, en von mín er að við höfum náð að kynna kjósendum stefnumál okkar fyrir næsta kjörtímabil.

Við sjálfstæðismenn í Ísafjarðarbæ höfum lagt mikla vinnu í mótun málefna- og stefnuskrár framboðslistans. Opnir fundir voru um allt sveitarfélagið þar sem flokksmönnum sem og öðrum íbúum var gefinn kostur á að taka þátt í mótun stefnunnar. Þessi vinna var sérlega ánægjuleg og skilaði að mínu áliti mögnuðum niðurstöðum, sem vonandi verða hornsteinninn að starfinu sem mun hefjast strax að lokinni talningu atkvæða.

Nú hefst alvaran! Við stöndum í miðju fárviðri efnahagshruns og sem aldrei fyrr nauðsynlegt að hafa samstillta áhöfn til að stýra fleyinu í örugga höfn. Þá áhöfn er að finna á lista okkar sjálfstæðismanna.

Nú verður að virkja bjartsýni, öflugan starfsanda og kraft bæjarfulltrúa til baráttu fyrir samfélagið. Grundvöllur velferðarinnar er öflugt atvinnulíf og sjálfstæðismenn vilja virkja kraft einstaklinga og framtaksemi þeirra til enn frekari átaka í uppbyggingu atvinnu- og félags- og menningarlífs í okkar frábæra samfélagi. Takist okkur að fá einstaklinga, fulltrúa atvinnulífs og aðra til að leggja hönd á plóg þá er ljóst að unnt verður að sækja fram og efla samfélagið öllum til hagsbóta.

Hér í bæ eru mörg öflug fyrirtæki í fiskvinnslu, útgerð, verslun, iðnaði og þjónustu. Hér er öflugt menningar-, lista- og félagslíf, já hér eru öflugir leik- og grunnskólar, menntaskóli og Háskólasetur Vestfjarða. Hér er mjög öflug félagsþjónusta, hér er öflug heilbrigðisþjónusta, öflug þjónusta við aldraða og svo framvegis.

Íbúar Ísafjarðarbæjar eru stolt og kraftmikið fólk. Hér er gott að búa og hér er unnt að gera góðan bæ enn betri. Tökum nú höndum saman, virðum þarfir og vilja hvers annars, unum öðrum góðs og gleðjumst yfir velferð annarra, styðjum þá sem minna mega sín og veitum þeim umönnun og virðingu sem öðrum samborgurum okkar. Sveitarfélagið mun taka við málefnum fatlaðra um næstu áramót og þar verður að vanda til verka, með samstarfi við núverandi starfsmenn Svæðisskrifstofu fatlaðra, aðstandendur og stuðningsaðila.

Eins og við höfum lagt kapp á að kynna munum við á næstu misserum þurfa að taka margar erfiðar ákvarðanir, svo sem í sambandi við fjármál og rekstur sveitarfélagsins, varðandi Funa og sorphirðumál, hafnarmál, leikskóla- og grunnskólamál, skipulagsmál og svo mætti lengi telja. Við verðum að ná samningum við stjórnvöld um uppbyggingu hjúkrunarheimils fyrir aldraða, en stjórnvöld hafa dregið að heimila byggingu þess. Við þurfum að finna leiðir með forsvarsmönnum atvinnulífsins til að efla það enn frekar.

Ég heiti því fyrir hönd okkar allra sem skipa D-listann að við munum vinna af heilindum, dugnaði og bjartsýni að því að styrkja rekstur Ísafjarðarbæjar, atvinnulíf og framgang velferðarmála.

Við frambjóðendur D-listans í Ísafjarðarbæ þökkum stuðningsmönnum okkar fyrir samfylgdina og óskum eftir því að þeir sem aðrir íbúar Ísafjarðarbæjar taki höndum saman með okkur og hefji hér nýja sókn, öllum íbúum til hagsbóta.

Eiríkur Finnur Greipsson, oddviti D-listans í Ísafjarðarbæ.





 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica