Jákvæðni og framtíðarsýn virka
Halldór Halldórsson
Í dag ganga kjósendur að kjörborðinu eftir stutta kosningabaráttu á flestum stöðum. Stutta en snarpa víðast hvar.
Margt hefur gerst, víða eru ný framboð að undirstrika að lýðræðið virkar þrátt fyrir allt á landinu bláa. Kjósendur munu svo ákveða hverjum þeir treysta best til að stjórna sínu sveitarfélagi. Þetta snýst jú um það. Hverjir eru hæfastir til að nýta tekjur sveitarfélagsins á sem skynsamastan hátt. Kjósendur hafa ekki verið eins meðvitaðir um rekstrarþáttinn í mjög langan tíma enda hefur árferði verið erfitt og sums staðar hafa sveitarfélög lent í vandræðum. Kröfurnar hafa verið dempaðar niður. Það mátti alveg.
Í mínu sveitarfélagi, Ísafjarðarbæ, hefur verið kosningabarátta undanfarna daga. Til viðbótar við framboð D-lista, B-lista og Í-lista Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra kom glaðbeitt framboð Kammónista en þar er ungt og jákvætt fólk að beita sér.
Mér finnst D-listinn og reyndar B-listinn líka hafa ásamt Kammónistum verið með jákvæða kosningabaráttu með áherslu á málefni. Kannski er ekkert óeðlilegt hjá þeim sem hafa verið í meirihluta að telja sig þurfa að svara rangfærslum og slíku. Mér finnst það nauðsynlegt svo kjósendur hafi réttar upplýsingar.
Mitt fólk á D-listanum hefur farið um allan bæ, Ísafjörð, Hnífsdal, Suðureyri, Flateyri, Þingeyri. Alls staðar er gengið í hús, haldnir fundir, kíkt á vinnustaði, farið um borð í báta og skip alveg niður í vélarrúm þurfi þess. Þau hafa verið með jákvæðni og framtíðarsýn í farteskinu og eru að mínu mati mjög flottur hópur reynslumikilla einstaklinga sem munu standa sig vel við stjórnvölinn hjá Ísafjarðarbæ.
Hvernig sem fer er ávallt ástæða til að gleðjast yfir kosningum og þeim heilaga rétti sem hverju og einu okkar er færður til að hafa áhrif á okkar umhverfi.

